Tilkynningar og fréttir

Félagsmiðstöðin Órion óskar eftir starfsfólki sem hefur áhuga á að vinna með unglingum í 5.-10. bekk…

Félagsmiðstöðin Órion óskar eftir starfsfólki sem hefur áhuga á að vinna með unglingum í 5.-10. bekk.

Félagsmiðstöðin Órion býður börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Órion er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa v…
readMoreNews

Laus er til umsóknar staða skólastjóra við Tónlistarskóla Húnaþings vestra.

Laus er til umsóknar staða skólastjóra við Tónlistarskóla Húnaþings vestra. Um 100% starf er að ræða með kennsluskyldu. Kennsla í hljóðfæraleik fer fram á grunn-, mið- og framhaldsstigi. Helstu verkefni og ábyrgð: Veitir tónlistarskólanum faglega forstöðu á sviði tónlistarkennslu Tekur virkan þ…
readMoreNews
Sérstakur húsnæðsstuðningur

Sérstakur húsnæðsstuðningur

Húnaþing vestra greiðir sérstakan húsnæðisstuðning vegna námsmanna en sækja þarf um hann núna vegna haustannar 2022
readMoreNews
UMFÍ tekur við rekstri Skólabúðanna á Reykjum

UMFÍ tekur við rekstri Skólabúðanna á Reykjum

Í dag var undirritaður nýr samningur um rekstur Skólabúðanna að Reykjum í Hrútafirði við Ungmennafélag Íslands frá og með komandi hausti.
readMoreNews
Norðurbraut, endurnýjun lagna í götu.

Norðurbraut, endurnýjun lagna í götu.

Mánudaginn 15. ágúst nk. munu framkvæmdir hefast við endurnýjun vatns- og fráveitulagna Norðurbrautar, á milli Hlíðarvegar og Hvammavegar. Kappkostað verður að ljúka verkinu á sem skemmstum tíma. Til að byrja með verður lokað fyrir bílaumferð í skamman tíma við gatnamót Norðurbrautar og Hvammavegar og umferðinni sem kemur að norðan beint um hjáleiðir. Á meðan framkvæmdir standa yfir verður reynt að hafa að lágmarki annan helming Norðurbrautarinnar opinn fyrir umferð að mestu. Einnig verður reynt að hafa gangstéttar opnar fyrir gangandi/hjólandi umferð en mælt er með að fólk fari aðrar leiðir ef þess er kostur. Ingibjörn Pálmar Gunnarsson og Kristján Ársælsson verktakar sjá um jarðvegsframkvæmdir. Að framkæmd lokinni mun fljótlega verða farið í malbiksyfirlögn á þessum kafla Norðurbrautar á vegum Vegagerðarinnar. Rask og truflanir á afhendingu á köldu vatni verður óhjákvæmilegt meðan á framkvæmdum stendur, en reynt verður að halda því í lágmarki. Íbúar eru beðnir um að sýna framkvæmdinni þolinmæði. Hægt er að hafa samband við Benedikt Rafnsson, í síma 831-7100 eða á netfangið benedikt@hunathing.is, vegna framkvæmdarinnar. Veitusvið
readMoreNews
Sveitarstjórnarfundur

Sveitarstjórnarfundur

355. fundur sveitarstjórnar Húnaþings vestra verður haldinn fimmtudaginn 11. ágúst 2022 kl. 15:00 í fundarsal Ráðhússins.
readMoreNews
Skráning í íþróttamiðstöðina veturinn 2022-2023

Skráning í íþróttamiðstöðina veturinn 2022-2023

Nú er haustið á næsta leiti og því ekki seinna vænna að skipuleggja kvöldæfingar fullorðinna í íþróttasalnum fyrir komandi vetur. Hópar eru hvattir til að senda inn óskir sínar fyrir tíma til kvöldæfinga í íþróttamiðstöðinni. Í boði eru tímar á mánudögum – fimmtudaga frá kl. 18:30 – 21:30. Pantanir…
readMoreNews
Gærurnar við nýju stafrænu klukkuna.

Vegleg gjöf frá Gærunum

Í sumar barst íþróttamiðstöðinni vegleg gjöf frá Gærunum, en þær halda úti nytjamarkaðinum á Hvammstanga.
readMoreNews
Laus staða í leikskólanum Ásgarði

Laus staða í leikskólanum Ásgarði

Leikskólakennarar – leiðbeinendur
readMoreNews
Færð vega á Víðidalstunguheiði

Færð vega á Víðidalstunguheiði

Nú loksins eru allir vegir á Víðidalstunguheiði opnir fyrir umferð en í sumar hafa þeir verið óvenju blautir og því lengur ófærir. Þó búið sé að opna allar leiðir eru einstaka kaflar leiðinlega mjúkir enn og vegfarendum bent á að fara með gát og ef vætutíð verður áfram er ekkert öruggt í þessum efnum. Sveitarfélagið á og rekur fimm gangnamannaskála á Víðidalstunguheiði sem eru leigðir út til gistingar og sér Júlíus Guðni Antonsson um bókanir og þjónustu við þá. Sími hans er 865 8177.
readMoreNews