Fjallaskálar

Hér er að finna ýmsar nytsamlegar upplýsingar um fjallaskála í Húnaþingi vestra

Víðidalstunguheiði:

Húnaþing vestra á og rekur fimm gangnamannaskála á Víðidalstunguheiði. Skálarnir eru notaðir í leitum á haustin til gistingar fyrir gangnamenn en jafnframt hafa aðrir sem leið eiga um Víðidalstunguheiði fengið afnot af skálunum gegn gjaldi. Júlíus Guðni Antonsson veitir frekari upplýsingar og sér um bókanir í síma 865 8177. Vert er að geta þess að vegir á heiðinni eru torsóttir og öllu jöfnu ekki færir nema vel búnum jeppum, upplýsingar um færð á vegunum er einnig að fá hjá Júlíusi.

Fellaskáli: Stendur við veg við Dauðsmannskvísl. Svefnpokagisting f. 32-36 manns, hesthús og hestahólf, rafstöð, gashellur, gasofn, gasgrill, vatn í vatnsforðabúri og vatnssalerni. (næstu veiðisv. Kolgrímsvötn og- lækur, Dauðsmannskvísl og Hólmakvísl.)

Haugakvíslaskáli: Stendur við veg frá Austurheiðarvegi niður að Víðidalsá rétt við Syðri- Haugakvísl. Svefnpokagisting f. 16-20 manns, hesthús og hestahólf, sólarsella f. lýsingu, gashellur, gasofn, gasgrill, vatn í vatnsforðabúri og vatnssalerni. (næstu veiðisv. Krókavötn, Sandfellskvísl og Víðidalsá ofan laxgengra svæða.)

Bleikskvíslarskáli: Stendur vestan Víðidalsár þar sem vegur þverar ánna.Svefnpokagisting f. 10-12 manns, hnakkageymsla og hestahólf, rafstöð,gashellur,gasofn, gasgrill, vatn í vatnsforðabúri og vatnssalerni. ( næstu veiðisv. Víðidalsá ofan laxgengra svæða og Bakatjörn)

Mönguhólsskáli: Stendur við veg við Fitjá og Tjarnhólakvísl. Svefnpokagisting f. 10-12 manns, hnakkageymsla og hestahólf, sólarsella f. lýsingu, gashellur, gasofn, vatn í vatnsforðabúri og vatnssalerni. (næstu veiðisv. Fitjá ofan laxgengra svæða og Bakatjörn)

Fosshólsskáli: Stendur sunnan Öxnár. Svefnpokagisting f. 16-20 manns, hnakkageymsla og hestahólf, rafstöð, gashellur, gasofn, vatnsdæla og vatnssalerni. (næstu veiðisv. Bergá, Víðidalsá ofan laxgengra svæða, Hólmavatn, Melrakkavatn, Þrístikla og Skálsvatn)

Var efnið á síðunni hjálplegt?