Vikurnar 26. janúar – 8. febrúar
Síðustu tvær vikur hafa verið annasamar. Tíminn flýgur og ótrúlegt til þess að hugsa að nú sé liðinn rúmur mánuður af nýju ári.
Á tímabilinu sem hér er fjallað um voru haldnir tveir byggðarráðsfundir. Á þeim fyrri bar hæst umfjöllun um leiguverð íbúða í eigu Húnaþings vestra sem nú er til skoðunar. Einnig var úthlutað úr atvinnu- og nýsköpunarsjóði ásamt því að bókuð var ítarleg umsögn um drög að frumvarpi til laga um lagareldi. Fundargerðin er hér. Á seinni fundinum var fjallað um umsókn sveitarfélagins um styrk úr framkvæmdasjóði aldraðra vegna endurbóta á íbúðum í elsta hluta Nestúns. Þegar er búið að taka tvær íbúðir í gegn og vinna við þá þriðju stendur yfir. Ef styrkur fæst og aðstæður leyfa er gert ráð fyrir að tvær til viðbótar verði teknar í ár. Á fundinum var einnig samþykkt heimild til Meistaraflokksráðs Kormáks-Hvatar til að selja kostun á nafni fótboltavallarins uppi í Hvammi í fjáröflunarskyni. Ítarleg umsögn var færð til bókar um samgönguáætlun þar sem farið var yfir helstu áherslumál, athugasemdir og tillögur sveitarfélagsins. Einnig var bókað um tillögu til breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar. Lýsti byggðarráð áhyggjum af því að með því væri verið að velta kostnaði yfir á sveitarfélögin. Fundargerðin er aðgengileg hér. Vert er að benda á að allar umsagnir sem sveitarfélagið veitir um þingmál og mál í samráðsgátt eru birtar á heimasíðunni, hér. Við höfum á þessu kjörtímabili lagt áherslu á að veita umsagnir um þau þingmál sem okkur varða og jafnframt að miðla þeim umsögnum með markvissum hætti.
Fyrri vikuna sem hér er fjallað um voru aðrir helstu fundir eftirfarandi:
- Með starfsmönnum sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs og verkefnisstjóra umhverfismála um málefni tjaldsvæða í sveitarfélaginu.
- Fundur með hafnasviði Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðra framkvæmda við höfnina en á áætlun er að ráðast í endurbyggingu á austari hluta trébryggjunnar. Hönnunarvinna og innkaup á efni mun líklega fara fram á þessu ári en framkvæmdir á því næsta.
- Fundur með Vegagerðinni vegna sameiginlegs útboðs á Vetrarþjónustu á Hvammstanga og Laugarbakka. Samningar um þjónustuna renna út eftir veturinn og stefnt er að útboði í mars.
- Fundur á vegum Byggðastofnunar og SSNV um styrkjamöguleika í NORA áætluninni.
- Fundur með sviðsstjóra umhverfis veitu og framkvæmdasviðs um fráveitumál í sveitarfélaginu en á næstu árum er gert ráð fyrir framkvæmdum við fyrsta stigs hreinsun á skólpi.
- Fundur með RARIK vegna fyrirhugaðra framkvæmda þeirra í sveitarfélaginu í sumar.
- Fundur með oddvita og formanni byggðarráðs um helstu mál og til undirbúnings byggðarráðsfundar.
- Vikulegur fundur framkvæmdaráðs.
- Hinir ýmsu fundir með starfsmönnum um ýmis mál auk símtala og heimsókna frá íbúum og verktökum.
Seinni vikuna voru helstu fundir eftirfarandi:
- Fundur á vegum Mannauðs, félags mannauðsfólks um innleiðingu gervigreindarlausna í fyrirtæki og stofnanir.
- Fundur í Reykjavík með forstjóra og stjórnarformanni Landsnets vegna ákvörðunar stjórnar um legu Holtavörðuheiðarlínu 3 sem nokkuð hefur verið í umræðunni. Áttum við ágætan fund þar sem við komum sjónarmiðum sveitarfélagsins á framfæri. Hefur sveitarstjórn lýst yfir áhyggjum sínum af valinu þar sem farið verður í gegnum ræktarlönd mjög víða. Hafa bændur áhyggjur af því að það muni rýra verðgildi jarða þeirra. Munum við eiga áframhaldandi samtal við Landsnets vegna málsins.
- Fundur á Alþingi með þingmönnum kjördæmisins um helst áherslumál sveitarfélagsins. Samgönguáætlun bar þar eðlilega á góma, Holtavörðuheiðarlínan sömuleiðis, regluverk í tengslum við þaravinnslu og margt fleira. Við höfum lagt á það áherslu að heimsækja þingmenn reglulega til að upplýsa þá um það helsta sem er að gerast í sveitarfélaginu, er á döfinni og sýn okkar á helstu áherslumál.
- Fundur með þjónustuaðila í tenglsum við opnun á sk. Velferðartorgi þar sem starfsmönnum sveitarfélagsins er gert kleift að leita sér sérfræðiaðstoðar m.a. hjá sálfræðingum. Nokkuð sem tekið verður í notkun á næstu vikum. Verkefnið er unnið í tengslum við nýja geðheilsustefnu en ég er afar stolt af því að Húnaþing vestra var fyrsta sveitarfélagið til að setja sérstaka stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilsumálum starfsmanna.
- Fundur með oddvita og formanni byggðarráðs um helstu mál og til undirbúnings byggðarráðsfundar.
- Vikulegur fundur framkvæmdaráðs.
- Hinir ýmsu fundir með starfsmönnum um ýmis mál auk símtala og heimsókna frá íbúum og verktökum.
Önnur verkefni:
- Yfirlestur á vatnaáætlun en ég sit í vatnasvæðanefnd fyrir hönd sveitarfélagsins. Vatnaáætlun er til endurskoðunar nú og gert ráð fyrir að ný áætlun líti dagsins ljós 2028. Gildandi vatnaáætlun er að finna hér. Gerði ég eina athugasemd við tillöguna sem lá frammi sem laut að skilgreiningu vatnshlota.
- Skoðun á reglum um götu- og torgsölu í sveitarfélaginu í kjölfar fyrirspurnar. Kveðið er á um slíkt í byggingarreglugerð og í lögreglusamþykkt þar sem er tilgreint að sveitarfélögum sé heimilt að setja sér sérstakar reglur í þessum efnum. Slíkar reglur eru ekki til í Húnaþingi vestra en verður farið í að setja þær í kjölfar fyrirspurnarinnar.
- Nokkur vinna fór í að greina leiguverð íbúða í eigu sveitarfélagsins sem fjallað var um á byggðarráðsfundi. Íbúðir í eigu sveitarfélagsins eru um 40 talsins sem er mun meira en hjá þeim sveitarfélögum sem við berum okkur saman við. Hluti þeirra eru félagslegar íbúðir, hluti íbúðir fyrir eldri borgara og íbúðir í sambýlinu Grundartúni en einnig á sveitarfélagið nokkrar almennar leiguíbúðir. Íbúðum í síðastnefnda flokknum hefur fækkað undanfarin ár með sölu á nokkrum eignum og eða eignum sem settar hafa verið inn í Leigufélagið Bríeti sem er óhagnaðardrifið leigufélag. Leigverð þessara eigna hefur verið mismunandi. Oftar en ekki hefur sveitarfélagið dregist aftur úr ef litið er til leiguverðs pr. fermeter og því nauðsynlegt að skoða þessi mál reglulega. Einnig er verið að skoða með hvaða hætti húsaleigubótakerfið mætir leigugreiðslum en sveitarfélagið greiðir svokallaðar sérstakar húsaleigubætur til þeirra sem eru undir ákveðnum eigna og tekjumörkum. Þessi mál eru því til gangerrar endurskoðunar og ætti að liggja fyrir á næstu vikum hvort og þá með hvaða hætti verður farið í breytingar á útleigu íbúða í eigu sveitarfélagsins.
- Undirbúningur verkefnisins Ljóðaskilti sem sveitarfélagið fék nýverið styrk til. Um er að ræða uppsetningu á skiltum með ljóðum eftir Eyrúnu Ingadóttur við göngustíginn á leiðinni frá Kaupfélaginu upp í Hvamm.
- Gagnaöflun vegna úttektar á umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviði sem nú stendur yfir.
- Kallað eftir tilnefningum í ungmennaráð en nýtt ráð verður skipað á næsta sveitarstjórnarfundi.
- Vinna við umsagnir sem lagðar voru fram á byggðarráðsfundum. Sú vinna er mjög oft tímafrek, sérstaklega ef um er að ræða stór mál eins og t.d. samgönguáætlun en að sama skapi mjög mikilvæg.
- Samskipti við fasteignasala vegna íbúðar að Hlíðarvegi 25 sem nú er á sölu.
- Undirbúningur á landsbúnaðarráðsfundi sem var svo frestað.
- Yfirferð yfir drög að skýrslu í kjölfar stjórnsýsluúttektar sem gerð er árlega í tengslum við ársuppgjör sveitarfélagsins. Sérfræðingur frá KPMG fer þá yfir bókanir og verklag sveitarfélagsins og kemur með athugasemdir. Undanfarin ár hafa athugasemdir verið í lágmarki og svo er einnig í ár.
- Yfirferð ýmissa mála með skipulags- og byggingafulltrúa.
- Samskipti vegna spennandi atvinnutækifæra. Á þessi mál hef ég lagt mikla áherslu undanfarin misseri en auk þaragarðsins sem flestum er kunnugt um eru nokkur önnur verkefni á teikniborðinu sem verður vonandi hægt að segja frá fljótlega.
- Undirbúningur byggðarráðsfunda en stilla þarf upp dagskrá og gera tillögur að bókunum og afgreiðslu mála í samvinnu við formann.
- Yfirferð yfir verkefnalista yfir það sem gera þarf við sveitarstjórnarskipti. Á kjörtímabilinu hef ég verið að taka saman lista yfir það sem gera þarf þegar ný sveitarstjórn tekur við en eins og kunnugt er fara sveitarstjórnarkosningar fram í maí. Við sveitarstjórnarskipti þarf að tilkynna breytingar á ýmsum stjórnum o.fl. og mikilvægt að ekkert farist fyrir. Því verður sá listi klár að kosningum loknum og þá hægt að vinna markvisst að því að klára praktísku málin þegar ný sveitarstjórn tekur við.
- Skoðun á átaki Sambands íslenskra sveitarfélaga til að hvetja fólk til að taka þátt í sveitarstjórnarmálum og gefa kost á sér í sveitarstjórnir. Sjá nánar hér. Munum við birta efni í tengslum við átakið á miðlum sveitarfélagsins.
Þetta er svona það helsta sem fengist var við en eins og áður er listinn alls ekki tæmandi. Ótaldir eru fjölmargir styttri hittingar og símtöl og verkefni sem renna lenda á borði sveitarstjóra. Og einstaka eldar sem kvikna og þarf að slökkva. Að síðustu verð ég að nefna 69. þorrablót Kormáks sem fram fór 7. febrúar. Ég vil þakka öllum þeim sem að skipulagningu blótsins komu. Að vanda var mikill metnaður lagður í skemmtiatriðin sem voru sem fyrr meiriháttar góð. Það er magnað hvað þau sem að þeim standa ná að herma vel eftir sveitungum sínum og oft er það svo að þau eru líkari viðkomandi en viðkomandi sjálfur. Takk öll sem að blótinu komu fyrir að skipuleggja og framkvæma fyrir okkur hin. Það er mikils metið.