Umsjónarmaður veitna

Leitum að öflugum aðila til að sjá um veitur sveitarfélagsins. Starfið eru liður í heildarendurskoðun á störfum þjónustumiðstöðvar með það að markmiði að bæta þjónustu við íbúa. Við leitum að einstaklingi sem vill vera hluti af öflugu teymi starfsmanna þjónustumiðstöðvar, viðhalda innviðum sveitarfélagsins og þjónusta íbúa af alúð.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með veitum sveitarfélagsins, hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu.
  • Úttektir og gerð viðhalds- og viðgerðaráætlana veitna í samvinnu við sviðsstjóra.
  • Viðhald og lagfæringar á veitum og mat á hvenær kalla þarf til iðnaðarmenn í samráði við sviðsstjóra.
  • Samskipti við verktaka varðandi nýframkvæmdir og viðhald veitna.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Æskilegt er að umsjónarmaður veitna hafi iðnmenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sambærilegum verkefnum og reynsla af mati á ástandi og viðhaldsþörf veitna er kostur.
  • Umsjónarmaður veitna skal búa yfir framúrskarandi þjónustulund, samskiptahæfileikum og færni til að eiga samskipti við starfsmenn, iðnaðarmenn og íbúa Húnaþings vestra.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð eru skilyrði.

Laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamning viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Í samræmi við Jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru einstaklingar af öllum kynjum hvött til að sækja um starfið

Upplýsingar um starfið veitir Ingimar Ingimarsson sviðsstjóri, eignir@hunathing.is

Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst 2026.

Umsóknum er skilað í gegnum ráðningavefinn alfred.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?