Vikurnar 9. febrúar – 22. febrúar 2026
Fyrri vikan hófst eins og jafnan á fundi framkvæmdaráðs þar sem við fórum yfir það sem helst er á baugi. Að honum loknum tók við undirbúningur byggðarráðsfundar sem var á dagskrá eftir hádegið. Einnig gafst tími í ýmis mál, svara tölvupóstum og vinna í umsókn um framlag til áframhaldandi endurbóta á Félagsheimilinu Hvammstanga í gegnum áhersluverkefni SSNV. Síðustu tvö ár höfum við fengið framlag frá fjárlaganefnd til framkvæmdanna en í ár voru slík framlög skert verulega og sett inn í farveg áhersluverkefna hjá SSNV. Á byggðarráðsfundinum var leiguverð íbúða í eigu sveitarfélagsins áfram til skoðunar, samstarfssamningur um afnot Lions af samfélagsmiðstöðinni sömuleiðs og lagt fram tilboð í eignina að Hlíðarvegi 25. Var mér falið að gera gagntilboð. Eignin er komin á mikið viðhald sem kaupandi gerir sér grein fyrir og verðið endurspeglar það. Mér var sömuleiðis falið að taka undir umsögn heilbrigðiseftirlitsumdæma um fyrirhugaðar breytingar á starfsemi þeirra en áhyggjur eru uppi af því að þær breytingar leiði til aukins kostnaðar, fækkunar starfa á landsbyggðinni, tap á staðbundinni þekkingu o.fl. Sérreglur um byggðakvóta voru sömuleiðis teknar til afgreiðslu. Sjá fundargerð hér.
Á þriðjudeginum hófust leikar á áframhaldandi vinnu við gerð umsóknar um áhersluverkefnið sem ég nefndi hér að framan. Í framhaldinu átti ég tvo fundi, báða um uppbyggingu atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu. Það er afar ánægjulegt hversu mörg slík tækifæri eru á borðinu í dag sem gefur fyrirheit um fjölgun starfa í sveitarfélaginu. Þessi verkefni eru bæði viðbót við þaraverkefnið sem þegar hefur verið kynnt. Vonandi verður hægt að greina frá þeim fljótlega. Ýmsar ástæður eru fyrir þessum áhuga fjárfesta. Til dæmis aðgengi að heitu vatni, aðgengi að rafmagni sem eykst með byggingu aðveitustöðvar við Laugarbakka sem jafnframt eykur afhendingaröryggi á svæðinu, staðsetningin o.fl. Undirbúningur sveitarstjórnarfundar fékk jafnframt athygli ásamt útsendingum fundarboðs.
Eftir hádegið sinnti ég ýmsum málum við skrifborðið, áfram umsókn um áhersluverkefni, útboðsgögnum vegna fyrirhugaðs útboðs á rotþróarhreinsun o.fl. Ég hélt áfram með þau verkefni á miðvikudagsmorgni ásamt því að skoða leiguverð eigna í sveitarfélaginu með fjölskyldusviði. Einnig settist ég niður með slökkviliðsstjóra og sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs til að fara yfir brunavarnir í eignum sveitarfélagsins. Eftir hádegið sat ég svo upplýsingafund með Sambandi íslenskra sveitarfélaga og ráðuneytum sem koma að breytingum á verkefnum heilbrigðiseftirlita á landinu þar sem farið var yfir í hverju þær felast. Fundurinn var fjölsóttur en því miður var ekki boðið upp á spurningar á fundinum sem fundarmenn undruðust. Því er enn fjölmörgum spurningum ósvarað.
Á fimmtudagsmorgninum byrjaði ég daginn á að skoða áfram leiguverð eigna og svo tók við undirbúningur sveitarstjórnarfundar. Undirbúningsfundir hófust svo kl. 13 eins og jafnan og sveitarstjórnarfundurinn sjálfur kl. 15. Á honum voru fundargerðir staðfestar auk þess sem tilnefnt var í ungmennaráð og sérreglur um byggðakvóta voru staðfestar. Að sveitarstjórnarfundi loknum fundaði ég með oddvita og formanni byggðarráðs til að fara yfir helstu mál.
Á föstudagsmorgni fór ég suður til Reykjavíkur í bítið. Á leiðinni sat ég fund framkvæmdastjóra sveitarfélaga með Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þegar í bæinn var komið byrjaði ég á að sitja fróðlegt námskeið um leiðir til að fyrirbyggja streitu og kulnun starfsmanna. Eftir hádegið sat ég svo stjórnarfund Eignarhaldsfélags Brunabótarfélags Íslands en þar er ég varamaður í stjórn.
Mánudagurinn 16. febrúar hófst með stuttum fundi framkvæmdaráðs og strax í kjölfarið fundi með starfsmönnum ráðhússins. Á hinum síðari fórum við yfir það helsta sem var á dagskrá síðasta sveitarstjórnarfundar auk þess sem efst var á baugi. Að því loknu fór ég yfir í Skagafjörð þar sem ég sat fund Íslandsstofu þar sem kynnt var starfsemi þeirra, um kvöldið var svo kvöldverður í þeirra boði á Hofsstöðum. Það var gott að fá tækifæri til að kynna fyrir starfsmönnum stofunnar þau verkefni sem eru í farvatninu í Húnaþingi vestra og þau tækifæri sem hér felast til fjárfestinga.
Morguninn eftir hófst á mánaðarlegum stjórnendafundi forstöðumanna stofnana sveitarfélagsins. Að því loknu fundaði ég um atvinnuuppbyggingarverkefni og því næst komu í heimsókn fulltrúar frá RARIK til að fara yfir framkvæmdir sumarsins. Eftir hádegið átti ég svo stuttan fund með framkvæmdastjóra Brákar sem stendur að byggingu fjölbýlishússins við Norðurbraut sem hefur rokið upp síðustu mánuðum. Stefnt er að afhendingu þess fullbúnu í apríl. Þegar er nokkur áhugi á íbúðunum en þær eru hugsaðar fyrir tekjulægri einstaklinga. Önnur verkefni þennan daginn voru hefðbundin, samþykkt reikninga, yfirferð á tímaskráningum, tölvupóstar o.s.frv.
Á miðvikudeginum var ég í fríi frá störfum sveitarstjóra og fór aftur til Reykjavíkur til að funda í tengslum við stjórnarformennsku mína hjá Orkubúi Vestfjarða. Á fimmtudeginum var svo enn ein suðurferðin, í þetta skiptið til að fara fyrir umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis og fylgja eftir umsögn sveitarfélagsins um samgönguáætlun. Umsögnin ásamt öðrum umsögnum sem sveitarstjórn veitir eru aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins. Stór hluti af störfum sveitarstjóra er að rýna frumvörp og þingsályktunartillögur, gera drög að umsögnum og fylgja þeim eftir með það fyrir augum að gæta hagsmuna sveitarfélagsins. Við höfum lagt okkur fram um að mæta til fundar við nefndir frekar en að taka fundi í fjarfundi þó það kalli á hraðferð fram og til baka eins og í þetta skiptið. Við lögðum af stað í bítið en vorum komin til baka fyrir kl. 13 og náði ég því góðum tíma við skrifborðið eftir hádegið. Seinnipart dags var ég svo með fyrirlestur um samvinnuverkefni sveitarfélaga í meistaranámi í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands og átti gott spjall við nemendur um efnið.
Föstudagurinn var svo skrifborðsdagur enda heilmikið sem beið eftir þvæling vikunnar. Mestur hluti tímans þann daginn fór í að vinna kynningu á stöðu, horfum og helstu áherslum sveitarfélagsins fyrir þingmenn sem voru búnir að boða komu sína í komandi viku í tengslum við kjördæmaviku. Einnig undirbúningur byggðarráðsfundar komandi viku, rýni á tilboðum í tryggingar sveitarfélagsins o.s.frv.
Heilt yfir annasamar og fjölbreyttar vikur. Alveg eins og við viljum hafa þær.