Byggðarráð

1270. fundur 09. febrúar 2026 kl. 14:00 - 15:03 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá

1.Leiguverð íbúða í eigu Húnaþings vestra

Málsnúmer 2601029Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá 1268. fundar.
Lögð fram tillaga að breytingum á leiguverði íbúða í eigu Húnaþings vestra. M.a. er um að ræða breytingu þess efnis að leiga allra eigna sveitarfélagsins verði færð nær markaðsverði og tekjulægri hópum þá mætt með sérstökum húsaleigubótum. Sveitarstjóra er falið að skoða framlagða tillögu með tilliti til greiðslna sérstakra húsaleigubóta.

2.Samstarfssamningur um afnot af samfélagsmiðstöð

Málsnúmer 2601048Vakta málsnúmer

Lagður fram samstarfssamningur Húnaþings vestra og Lions vegna aðstöðu í samfélagsmiðstöð.
Byggðarráð samþykkir framlagðan samning og felur sveitarstjóra undirritun hans.

3.Sala á íbúð að Hlíðarvegi 25

Málsnúmer 2509015Vakta málsnúmer

Lagt fram tilboð í íbúð að Hlíðarvegi 25, neðri hæð suður.
Tilboðið gera Haraldur Teodor Ödqvist og Jónína Arndís Guðjónsdóttir. Hljóðar tilboðið upp á kr. 10.000.000.- með fyrirvara um fjármögnun.

Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gera gagntilboð upp á kr. 13.000.000.

4.Drög að frumvarpi vegna flutnings eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna

Málsnúmer 2602014Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra um drög að frumvarpi vegna flutnings eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna.
Í erindinu koma fram áhyggjur af fyrirhuguðum flutningi eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna sem fram koma í máli S-3/2026 í Samráðsgátt stjórnvalda: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Vísað er til umsagnar Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða (SHÍ). Byggðarráð tekur heilshugar undir áhyggjur þær sem fram koma í erindinu og felur sveitarstjóra að taka undir umsögn SHÍ um málið.

5.Úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025-2026

Málsnúmer 2512068Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá 1266. og 1267. funda byggðarráðs. Lagðar fram uppfærðar sérreglur Húnaþings vestra vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025-2026.
Samkvæmt tilkynningu innviðaráðuneytis er Húnaþingi vestra úthlutað 100 tonnum af byggðakvóta fiskveiðiárið 2025/2026 í stað 130 tonnum fiskveiðiárið 2024/2025. Frestur var veittur til 12. febrúar til að gera tillögur að sérreglum um úthlutun kvótans eftir framkomnar athugasemdir um áður samþykktar reglur.
Ákvæði reglugerðar nr. 1335/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Húnaþings vestra með eftirfarandi viðauka/breytingum:
I.1.málsl. 1.mgr. 4.gr. reglugerðarinnar: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1.gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum og ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3.gr., eftir því sem við á þannig að:
a. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 818/2024 vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 819/2024, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025. Við skiptingu þessa 50% byggðakvóta Húnaþings vestra, til framangreindra skipa, skal miða við meðaltal landaðs botnfiskafla í þorskígildum talið, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn fiskveiðiárið 2024/2025.
b. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 1334/2024, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026. Skiptingunni verður háttað með þeim hætti að hvert fiskiskip sem uppfyllir framangreind ákvæði hlýtur að lágmarki 30 tonn og eftirstöðvum úthlutað miðað við meðaltal landaðs botnfiskafla, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn fiskveiðiárið 2024/2025.
c. Skip eiga rétt til úthlutunar úr báðum pottum samkvæmt a- og b-lið, að uppfylltum skilyrðum.
Rökstuðningur: Af þeim bátum sem gera út frá Hvammstanga er aðeins hluti þeirra sem varð fyrir áhrifum aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa. Fyrir þá báta sem ekki hljóta kvóta vegna rækjubrests er mjög erfitt að safna upp löndunarreynslu og því er lagt til að sá hluti byggðakvótans sem b. liður nær yfir verði að lágmarki veitt 30 tonnum á hvern bát og því sem eftir stendur úthlutað út frá löndunarreynslu.
II. 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:
Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
Rökstuðningur: Í byggðarlaginu er engin fiskvinnsla.
Byggðarráð samþykkir framangreindar reglur og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

6.Heimild til sölu á bifreið.

Málsnúmer 2602017Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs þar sem óskað er heimildar til sölu á bifreiðinni Ford Transit FNS69, dagþjónustubifreið.
Byggðarráð samþykkir að heimila sölu á bifreiðinni í umboðssölu hjá Brimborg. Ráðið samþykkir jafnframt að veita sveitarstjóra heimild til að leggja mat á tilboð sem kunna að berast í bifreiðina og taka ákvörðun um sölu.

7.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2602001Vakta málsnúmer

Fundargerð 922. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:03.

Var efnið á síðunni hjálplegt?