Drög að frumvarpi vegna flutnings eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna

Málsnúmer 2602014

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1270. fundur - 09.02.2026

Lagt fram erindi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra um drög að frumvarpi vegna flutnings eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna.
Í erindinu koma fram áhyggjur af fyrirhuguðum flutningi eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna sem fram koma í máli S-3/2026 í Samráðsgátt stjórnvalda: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Vísað er til umsagnar Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða (SHÍ). Byggðarráð tekur heilshugar undir áhyggjur þær sem fram koma í erindinu og felur sveitarstjóra að taka undir umsögn SHÍ um málið.
Var efnið á síðunni hjálplegt?