5. maí 2025

Vikurnar 14. apríl til 4. maí 2025

Eins og fram kom í síðustu færslu tók ég mér frí í dymbilvikunni. Hins vegar höfðu raðast nokkrir fundir á þá daga sem ég sat í fjarfundi. M.a. kynningu hönnuða á vinnu við hönnun áfangastaðarins við Hvítserk sem reikna má með að ljúki fljótlega, einnig fundaði ég með fulltrúa Eims um ýmis mál er tengjast atvinnuuppbyggingu. Þá fundaði ég með rekstraraðila kortasjár sveitarfélagsins en við erum að uppfæra hana til að bæta upplýsingamiðlun og geymslu upplýsinga á innri kortasjá. Ég sat fulltrúaráðsfund Stapa lífeyrissjóðs og loks fund með verktakanum sem ætlar að byggja íbúðir við Norðurbraut 15.

Vikan eftir páska fór rólega af stað enda margir í fríi þar sem ekki þurfti að taka marga orlofsdaga til að ná löngu fríi. Þá vikuna var nú engu að síður ýmislegt sýslað. T.d. kynning á loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslunum á vegum SSNV en samtökin fengu KPMG til að vinna drög að stefnunni. Hún er nú í yfirferð áður en hún verður lögð fyrir sveitarstjórnir. Ég fundaði ásamt sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs með rekstraraðila bókhaldskerfis sveitarfélagsins en uppfærsla á því stendur fyrir dyrum. Einnig fundaði ég með mannauðsráðgjafa sveitarfélagsins um næstu skref í mannauðsmálum sem eru stjórnendahandbók og starfsmannahandbók.

Það var ánægjuleg stund þegar formleg opnun á húsnæði samþættar heimaþjónustu fór fram. Þá var jafnframt kynnt nafn þjónustunnar, Snælda heimaþjónusta. Það er ástæða til að óska íbúum til hamingju með þetta nýja samstarf en ég hef mikla trú á því að það verði til þess að bæta þjónustuna til muna. Verkefnið hefur gengið afar vel og það vel að þær Henrike Wappler og Sesselja Kristín Eggertsdóttir sem leiða vinnuna voru valdar úr hópi nokkur hundruð aðila til að halda kynningu á starfinu á ráðstefnu í Lissabon nú í maí. Kaffi Kandís var haldið við sama tækifæri og fór ég og spjallaði við nokkra íbúa á sjúkrahúsinu.

Sesselja Kristín Eggertsdóttir og Henrike Wappler hafa leitt verkefnið Gott að eldast í Húnaþingi ve…

Kristín og Henrike taka við gjöf frá Húnaþingi vestra við opnun Snældunnar, heimaþjónustu.

Lóuþrælarnir héldu afmælistónleika í vikunni eftir páska sem ég fór á. Verð að segja að kórinn hefur sjaldan verið betri. Á laugardeginum fór ég svo á tónleika Rokkkórsins sem haldinn var í Dalabúð í Búðardal. Ég hafði ekki komist á fyrri tónleika kórsins svo ég renndi yfir Laxárdalsheiðina. Ég sá ekki eftir því enda tónleikarnir algerlega frábærir. Við eigum ekkert lítið hæfileikaríkt söng- og tónlistarfólk.

Lóuþrælarnir undir stjórn Guðmundar St. Sigurðssonar. 

Sumardagurinn fyrsti var haldinn hátíðlegur að vanda á Hvammstanga með skrúðgöngu og samkomu í Félagsheimilinu. Vetur konungur færði Sumardísinni veldissprotann og yngstu nemendur Grunnskólans sungu. Allir fengu vöfflu með rjóma og á eftir voru spilaðar nokkrar Bingó raðir. Foreldrafélag leikskólans sá um hátíðarhöldin að þessu sinni og kann ég þeim allra bestu þakkir fyrir.

Að venju var stöðvað við sjúkrahúsið og sungið fyrir heimilisfólk.

Vikan 28. apríl til 4. maí varð líka endasleppt. Til viðbótar við einn frídag í vikunni var ég þriðjudag og miðvikudag í kynnisferð sveitar- og bæjarstjóra um uppsveitir Árnessýslu. Vikan hófst þó á fundi með Helenu Jónsdóttur hjá Mental ráðgjöf um vinnu í kjölfar geðheilbrigðisátaksins sem hefur staðið frá því um áramót. Fengum við styrk úr Lýðheilsusjóði til að halda þeirri vinnu áfram og er markmiðið að móta geðheilsustefnu og setja saman verkfærakistu fyrir stjórnendur. Fundur byggðarráðs fór fram eftir hádegið. Dagskráin var óvenju löng í liðum talið en mikið af fundargerðum og ársreikningum til kynningar svo lengd fundarins var ekki í hlutfalli við málafjölda. Afgreiddar voru þrjár umsagnir um þingmál og kerfisáætlun. Það er ekki úr vegi að minna á að allar umsagnir sem sveitarfélagið veitir eru aðgengilegar á einum stað á heimasíðunni. Fundargerð byggðarráðsfundarins er hér.

Eins og áður kom fram sóttu sveitar- og bæjarstjórar uppsveitir Árnessýslu heim á þriðjudag og miðvikudag. Fórum við um í Hrunamannahreppi, Grímsnes- og Grafningshreppi, Bláskógabyggð og Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Heimsóttum við fyrirtæki og skoðuðum stofnanir ásamt því að hlýða á fyrirlestur Þórodds Bjarnasonar prófessors um byggðafestu og búferlaflutninga. Ferðin var lærdómsrík og gott að eiga spjall við kollega um málefni sveitarfélaga. Tvennt tek ég með mér úr ferðinni. Annars vegar hversu mikil atvinnusköpun hefur átt sér stað í kringum jarðvarma á þessu svæði. Nokkuð sem er umhugsunarefni fyrir okkur hér í Húnaþingi vestra og mikið sóknarfæri. Hins vegar tek ég það með mér úr samtölum við kollegana að til viðbótar við samgöngurnar þá eru það heilbrigðismál og löggæslumál sem hvað oftast ber á góma yfir það sem betur má fara í sveitarfélögunum. Í báðum þessum málaflokkum búum við vel, svo vel að íbúar Húnaþings vestra eru þeir ánægðustu á landinu með heilsugæsluna og að hér var opnuð mönnuð lögreglustöð fyrir einu og hálfu ári. Það er gott að minna sig á hvað margt er gott í sveitarfélaginu og um það þarf að standa vörð.

May be an image of 10 people

Sveitar- og bæjarstjórar stilla sér upp við Aratungu.

Ég kom heim úr ferðinni á fimmtudeginum, baráttudegi verkalýðsins. Föstudagurinn fór í að svara póstum og hreinsa upp syndir sem safnast höfðu upp í fjarverunni. Ég leit svo í vinnuna á sunnudeginum til að undirbúa komandi sveitarstjórnarfund, undirbúa bókanir og fleira. Fjölbreyttar og skemmtilegar vikur að baki.

Var efnið á síðunni hjálplegt?