Byggðarráð

1243. fundur 28. apríl 2025 kl. 14:00 - 15:18 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon varamaður var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sigríður Ólafsdóttir
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá
Elín Lilja Gunnarsdóttir, varaformaður, setti fund.

1.Opnunartími leikskóla og grunnskóla í kjölfar kjarasamninga

Málsnúmer 2411049Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað með niðurstöðum starfshóps.
Í minnisblaðinu koma fram hugmyndir um breytingar á opnunartíma til að mæta breytingum á kjarasamningum með tilliti til styttingar vinnuviku. Byggðarráð þakkar starfshópnum vel unnin störf. Sveitarstjóra er falið að kostnaðargreina breytingarnar áður en afstaða er tekin til þeirra.

2.Verndarsvæði í byggð - skiltagerð

Málsnúmer 2504029Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur milli Húnaþings vestra og Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra um skiltagerð um verndarsvæði í byggð á Borðeyri.
Byggðarráð fagnar verkefninu. Ráðið samþykkir framlagðan samning og felur sveitarstjóra undirritun hans.

3.Slit á Héraðsnefnd Strandasýslu

Málsnúmer 2504051Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá KPMG um slit á Héraðsnefnd Strandasýslu og ósk um skipan fulltrúa Húnaþings vestra í slitanefnd.
Fulltrúi Húnaþings vestra verður Þorleifur Karl Eggertsson, oddviti sveitarstjórnar.

4.Trygging hrossa í stóðsmölun

Málsnúmer 2504039Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Hrossaræktarfélags Þorkelshólshrepps með áskorun til sveitarfélagsins um að sjá til þess að hross í stóðsmölun séu tryggð.
Byggðarráð þakkar erindið. Málið er í skoðun hjá tryggingarfélagi sveitarfélagsins.

5.Ársreikningur veiðifélags Miðfirðinga 2024

Málsnúmer 2504017Vakta málsnúmer

Ársreikningur veiðifélags Miðfirðinga fyrir árið 2024 lagður fram til kynningar.

6.Boð á aðalfund Stapa lífeyrissjóðs 2025

Málsnúmer 2504040Vakta málsnúmer

Lagt fram fundarboð á aðalfund Stapa lífeyrissjóðs 2025.

7.Stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðamála - mál til umsagnar - Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis

Málsnúmer 2504035Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Alþingi sem sendir til umsagnar stefnur og aðgerðaráætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, 271. mál.
Frumvarpið miðar að því öðru fremur að færa alla stefnumörkun og áætlanagerð á sviði samgöngu-, byggðamála og fjarskipta undir eitt ráð, stefnuráð, sem leysir af hólmi samgönguráð, byggðamálaráð og húsnæðis- og skipulagsráð. Byggðarráð Húnaþings vestra gerir alvarlegar athugasemdir við þau áform. Málefnasvið það sem heyra myndi undir nýtt stefnuráð er afar breitt sem getur komið niður á gæðum áætlana sökum skorts á sérþekkingu. Byggðarráð tekur heilshugar undir umsögn Byggðastofnunar þar sem varað er við að lögð verði af sérstök stefna í byggðamálum (byggðaáætlun). Það er mat ráðsins að með því að fella byggðaáætlun undir aðrar áætlanir ráðuneytisins sé lítið gert úr mikilvægi stefnumörkunar hins opinbera á sviði byggðamála þegar í raun þyrfti að gera slíkri stefnumótun enn hærra undir höfði en nú er gert. Byggðaáætlun hefur ótvírætt sannað gildi og mikilvægi sitt á undanförnum árum. Vinnulag við gerð hennar hefur aukinheldur reynst vel og hafa áætlanirnar notið stuðnings í meðferð Alþingis þvert á flokka. Það væri því að mati byggðarráðs stórt skref afturábak að rýra gildi áætlunarinnar með framangreindum hætti. Landsbyggðirnar mega ekki við slíkri afturför. Byggðarráð leggst gegn því að þessi hluti frumvarpsins nái fram að ganga. Ekki eru gerðar athugasemdir við breytingar sem lúta að aðlögun gildissviðs að breyttu málefnasviði ráðuneytisins.

8.Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum - mál til umsagnar - Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis

Málsnúmer 2504037Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Alþingi sem sendir til umsagnar sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum), 272. mál.
Byggðarráð ítrekar umsögn sína um málið á fyrri stigum sem var svohljóðandi:

Byggðarráð fagnar áformum hins opinbera um að bæta gæði kostnaðarmats, þ.e. mats á hugsanlegum áhrifum frumvarpa, tillagna að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu ríkisins á fjárhag sveitarfélaga. Sveitarfélögin hafa um langt skeið gagnrýnt skort þar á og fjölmörg dæmi um að kostnaðarmat sé ekki framkvæmt eða ekki fullnægjandi þegar það er gert, óljóst sé hvenær leita eigi umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og hvernig leyst skuli úr ágreiningi.

Það er mat Byggðarráðs Húnaþings vestra að nái frumvarpið fram að ganga geti það leitt af sér aukin fyrirsjáanleika í rekstri sveitarfélaga til framtíðar auk bættra samskipta ríkis og sveitarfélaga. Byggðarráð tekur jafnframt undir umsögn byggðarráðs Norðurþings þar sem fram kemur að komi í ljós að ekki hafi farið fram mat á fjárhagslegum áhrifum og ljóst að lagafrumvarp, stjórnvaldsfyrirmæli eða stefnumarkandi ákvarðanir ríkisins munu hafa fjárhagsleg áhrif á sveitarfélag eða sveitarfélög skal viðkomandi ráðherra eiga frumkvæði að viðeigandi ráðstöfunum sem geta m.a. falið í sér breytingu á fjármögnun eða þjónustukröfum.

9.Kerfisáætlun Landsnets 2025-2034

Málsnúmer 2504038Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Landsneti um Kerfisáætlun 2025-2034.
Í Kerfisáætlun Landsnets er fjallað um þau verkefni sem áformuð eru á árabilinu 2025-2034. Þó öll uppbygging raforkukerfisins á landinu varði Húnaþing vestra er hér einkum fjallað um þrjú verkefni sem á áætluninni eru og að hluta eða öllu leyti eru innan sveitarfélagamarka Húnaþings vestra.

Laugarbakki - nýtt tengivirki
Um er að ræða byggingu nýs 132kV afhendingarstaðar í meginflutningskerfinu sem mun tengjast inn á Laxárvatnslínu 1 við Laugarbakka. Megintilgangur framkvæmdarinnar er að auka afhendingargetu á svæðinu til að koma til móts við framtíðarálagsaukningu. Byggðarráð fagnar framkvæmdinni enda möguleikar til atvinnuuppbyggingar sem krefjast orku engir á svæðinu fyrr en tengivirkið verður risið. Byggðarráð mælist til þess að leitað verði leiða til að flýta framkvæmdinni enn frekar en áformað er að hún fari fram á árunum 2027-2029.

Holtavörðuheiðarlína 1
Um er að ræða lagningu nýrrar 220kV loftlínu frá tengivirki á Klafastöðum að nýju tengivirki sem reist verður á Holtavörðuheiði. Verkefnið er hluti af endurnýjun byggðalínu og sem slíkt afar mikilvægt til að auka bæði afhendingargetu og -öryggi um land allt. Lítill hluti línunnar er innan sveitarfélagamarka Húnaþings vestra en þó ekki í löndum sveitarfélagsins. Byggðarráð lýsir sig fúst til samstarfs um allt það sem að sveitarfélaginu snýr í tengslum við framkvæmdina enda verkefnið afar mikilvægt fyrir landsmenn alla.

Holtavörðuheiðarlína 3
Um er ræða lagningu nýrrar 220kV loftlínu frá Blönduvirkjun í nýtt tengivirki á Holtavörðuheiði. Mun línan loka tengingu frá Fljótsdal að Klafastöðum og er því mikilvægur hluti af nýrri kynslóð byggðalínu með það að markmiði að auka afhendingargetu og -öryggi um land allt. Fyrir liggja tveir meginvalkostir um lagningu línunnar. Byggðarráð vísar til umsagnar um umhverfismatsskýrslu um verkefnið dags. 17. febrúar 2025 þar sem áhersla er lögð á að farin verði svokölluð heiðaleið en hún liggur að stórum hluta um lönd sveitarfélagsins sem einfaldar framkvæmdina verulega.

10.Ársreikningur 2024 - Náttúrustofa Norðurlands vestra

Málsnúmer 2504050Vakta málsnúmer

Ársreikningur Náttúrustofu Norðurlands vestra 2024 lagður fram til kynningar.

11.Ársreikningur Veiðifélags Víðidalsár 2024

Málsnúmer 2503070Vakta málsnúmer

Ársreikningur veiðifélags Víðidalsár fyrir árið 2024 lagður fram til kynningar ásamt skýrslu formanns.

12.Ársskýrsla og ársreikningur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra

Málsnúmer 2504047Vakta málsnúmer

Ársskýrsla og ársreikningur Félags eldri borgara fyrir árið 2024 lagðar fram til kynningar.

13.Rannsóknir vegna ferðaþjónustu - Tvær skýrslur

14.Ályktun um græn svæði í þéttbýli

Málsnúmer 2504054Vakta málsnúmer

Ályktun frá Skógfræðingafélagi Íslands með ábendingu um að styðja við græn svæði í þéttbýli lögð fram til kynningar

15.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

16.Fundargerð fjallskilastjórnar Víðdælinga 15. apríl 2025

Málsnúmer 2504041Vakta málsnúmer

Fundargerð frá fundi fjallskilastjórnar Víðdælinga sem fram fór þann 15. apríl 2025 lögð fram til kynningar.

17.Fundargerð deildarfundar fjallskiladeildar Víðdælinga 22. apríl 2025

Málsnúmer 2504052Vakta málsnúmer

Fundargerð deildarfundar fjallskiladeildar Víðdælinga lögð fram til kynningar.

18.Fundargerðir stjórnar Náttúrustofu Norðurlands vestra 2025

Málsnúmer 2501044Vakta málsnúmer

Fundargerð stjórnar Náttúrustofu Norðurlands vestra frá 11. apríl 2025 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:18.

Var efnið á síðunni hjálplegt?