Markmið Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í sveitarfélaginu. Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu.
Áherslur Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra lúta að verkefnum sem stuðlað geta að auknum umsvifum, betri afkomu og rekstri fyrirtækja og þróun og nýsköpun í atvinnulífi í Húnaþingi vestra.Styrkir sem veittir eru úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra eru fyrst og fremst verkefna- og framkvæmdastyrkir, ekki rekstrarstyrkir eða styrkir til að mæta opinberum gjöldum eða greiða skuldir.
Umsóknareyðublað 2022
Úthlutunarreglur 2022
Atvinnu-og nýsköpunarsjóður - Lokaskýrsla