Þjónustustefna Húnaþings vestra
Til samráðs eru drög að þjónustustefnu Húnaþings vestra. Þjónustustefnan er sett á grunni 130. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í stefnunni er kveðið á um þá þjónustu sem sveitarfélagið hyggst bjóða upp á.
Umsögnum skal skilað á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna hér.
Umsagnarfrestur til og með 30. september 2025.
____________________________________________________________________________
Samráði lokið
Umgengnisreglur í leiguíbúðum Húnaþings vestra
Til samráðs eru drög að umgengnisreglum í leiguíbúðum Húnaþings vestra. Hægt er að senda inn ábendingar eða athugasemdir við drögin á heimasíðu Húnaþings vestra eða á netfangið siggi@hunathing.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu berast í síðasta lagi 13. júlí 2025. Einnig verður haldinn opinn íbúafundur í salnum á 2. hæð í Nestúni þann 9. júlí 2025 kl. 14:00 þar sem hægt verður að koma með ábendingar eða fyrirspurnir.
Drög að endurskoðun menntastefnu
Hér má finna drög að endurskoðun menntastefnu. Frestur er til 15. maí 2025 til að senda inn athugasemdir eða tillögur. Einnig er óskað eftir myndum til að birta í menntastefnu. Þær sendist á siggi@hunathing.is.
Tillögur um samfélagsmiðstöð.
Hér má finna tillögur um samfélagsmiðstöð í Félagsheimilinu Hvammstanga. Opið samráð um tillögurnar verður til 30. apríl 2025 og eru íbúar hvattir til að senda inn ábendingar eða tillögur hér.
Tillögur um opnunartíma leikskóla og frístundar.
Tillögur
Samráðshnappur.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 28. febrúar 2025.
Samráð um drög að stefnu um vellíðan án tóbaks, áfengis og annarra vímuefna.
Drögin í heild.
Samráðshnappur.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 28. febrúar 2025
Hugmyndir um samfélagsmiðstöð í Félagsheimilinu Hvammstanga.
Í skjölunum hér að neðan má sjá samantekt af fundum með íbúum og nemendum um hugmyndir þeirra um samfélagsmiðstöð. Öllum gefst nú tækifæri til að taka þátt í þessari hugmyndavinnu ef nýjar hugmyndir hafa komið fram, einhver komst ekki á fundinn eða athugasemdir eru við framkomnar hugmyndir og/eða forgang og mikilvægi þeirra. Hægt er að senda inn tillögur, ábendingar og hugmyndir til og með 4. desember 2024 á þessu eyðublaði.
Í kjölfarið mun fjölskyldusvið vinna skýrslu úr hugmyndavinnunni og leggja tillögur fyrir sveitarstjórn og íbúa um næstu skref.
Hugmyndir af íbúafundi.
Hugmyndir af fundi með mið- og unglingastigi.
Hugmyndir af fundi með dreifnámi.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir eða ábendingar um verkefnið á johann@hunathing eða siggi@hunathing.is.
Samráð um jafnréttisáætlun Húnaþings vestra
Samkvæmt 13. gr. laga nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála skulu sveitarstjórnir sjá til þess að sveitarfélagið setji sér áætlun um jafnréttismál. Áætlunin skal lögð fram til samþykktar í viðkomandi sveitarstjórn, hún rædd árlega og endurskoðuð eftir þörfum.
Byggðarráð fer með málaflokkinn og hefur nú samþykkt að setja fyrstu drög að nýrri jafnréttisáætlun í opið samráð á heimasíðu sveitarfélagsins. Öll áhugasöm eru hvött til að senda inn ábendingar og athugasemdir til og með 29. ágúst 2023.
Drög að jafnréttisáætlun Húnaþings vestra 2023-2026.
Smelltu hér til að senda inn umsögn.
Framtíðarsýn í málefnum eldri borgara.
Hér má nálgast samantekt af tveimur vinnufundum og einum kynningarfundi á hugmyndum og tillögum eldri borgara um framtíðarsýn í málefnum aldraðra. Samantektin er vinnuskjal sem hefur ekki verið flokkað nákvæmlega. Í megin atriðum snýr samantektin að húsnæðismálum, akstursþjónustu, snjómokstri og vilja til að sjá Félagsheimili Hvammstanga í nýju hlutverki.
Ábendingar um framtíðarsýn í málefnum eldri borgara má senda inn hér til og með 24. mars 2023.
Samráð um bekki á Hvammstanga og Laugarbakka
Kort með tillögum um fjölgun bekkja á Hvammstanga og Laugarbakka og í hvaða forgangi þegar fjármagn til þess leyfir samkvæmt fjárhagsáætlun. Til að skila inn ábendingum skal smella hér.
Samráð um drög að reglum um skólaakstur í Húnaþingi vestra
Drög að reglum um skólaakstur í Húnaþingi vestra. Gert er ráð fyrir að reglurnar verði samþykktar áður en útboð á skólaakstri fer fram 2023. Til að skila inn ábendingum skal smella hér. Umsagnarfrestur er til 27. desember 2022.
Samráð um drög að reglum um ráðgjöf um líðan og sálfræðiþjónustu í Húnaþingi vestra
Drög að reglum um ráðgjöf um líðan og sálfræðiþjónustu í Húnaþingi vestra. Til að skila inn ábendingum skal smella hér. Umsagnarfrestur er til 27. desember 2022.