8. júlí 2026

Kæru íbúar í Húnaþingi vestra.

Ég hlakka til áframhaldandi samstarfs á kjörtímabilinu sem nýhafið er og sem fyrr mun ég leggja mig fram við að miðla upplýsingum um það sem efst er á baugi í sveitarfélaginu. Dagbók sveitarstjóra verður á sínum stað að afloknum sumarleyfum en jafnframt mun ég reglulega birta pistla í Sjónaukanum svo þau sem ekki hafa aðgang að netinu geti einnig fylgst með. Þessi pistill birtist einmitt í Sjónaukanum en er birtur hér ásamt nokkrum myndum. Í honum eru framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins í forgrunni en nú eru nokkur stór verkefni í gangi eða að hefjast. Sumarið er enda háannatími framkvæmda.

Af framkvæmdum má helst nefna gagngera endurgerð á skólalóð Grunnskólans á Hvammstanga. Verið er að endurnýja leiktæki að nær öllu leyti, sett verður upp stórt leikskip, trampólín og aparóla auk hefðbundinna róla, sandkassa og fleira. Allt undirlag undir tækjunum mun uppfylla nauðsynlegar öryggiskröfur. Leikvöllurinn verður allur hinn glæsilegasti þegar framkvæmdum lýkur.

Leikskipið á skólalóðinni mun líta nokkurnveginn svona út.

Yfirlitsmynd yfir hönnun skólalóðarinnar.

Verið er að vinna við þak á aðstöðuhúsi í Kirkjuhvammi sem mun gjörbreyta aðstæðum til íþróttaiðkunar þar. Einnig er vinna að hefjast við að skipta um þak á húsi sem gengur undir nafninu Bjarnaborg á Reykjaskóla og er áfangi í umfangsmiklum endurbótum sem hafa staðið yfir á Reykjaskóla undanfarin ár á eignum þeim sem leigðar eru til Ungmennafélags Íslands til reksturs skólabúða fyrir grunnskólabörn víðsvegar af landinu.

Upphaf framkvæmda við þak aðstöðuhúss.

Endurbætur á Félagsheimilinu Hvammstanga halda áfram og nú erum við að færa okkur inn í húsið eftir að hafa endurnýjað þak og ytra byrði síðustu tvö ár. Hönnun á innra skipulagi hússins er nú í opnu íbúasamráði til 26. júlí og haldinn hefur verið íbúafundur til að fá fram sjónarmið íbúa. Einnig verður fundað með helstu hópum sem nýta húsið og þeirra hugmyndir teknar með í áframhaldandi vinnu. 

Vinnuteikning af efri hæð Félagsheimilisins. 

Við erum jafnframt að halda áfram með endurnýjun hitaveitulagna á Hvammstanga og mun í sumar verða unnið við fyrri hluta Hvammstangabrautar (syðri hluta) og lokið við framkvæmdir á Höfðabraut, Brekkugötu og Lækjargötu.

Á síðasta ári hófst átak í endurnýjun malbiks á Hvammstanga og er von á vélum og mannskap innan fárra daga til að ráðast í fyrsta áfanga ársins í ár. Verktakinn mun síðan snúa aftur í haust. Þá verður bílastæðið norðan við Íþróttamiðstöðina jafnframt malbikað.

Einnig eru að hefjast bæði nýbyggingar og lagfæringar á gangstéttum. Til dæmis er unnið að gerð gangstéttar frá Lindarvegi niður að Kirkjuvegi auk þess að malbikaður verður stígur á milli hverfa á Laugarbakka með haustinu. Þá eru ótalin önnur smærri verkefni. Það er því í nógu að snúast hjá umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðinu. Þar eru jafnframt að verða nokkrar breytingar á skipan starfa. Verið er að ganga frá ráðningu á umsjónarmanni eigna sem er nýtt starf sem auglýst var á dögunum og felur meðal annars í sér umsjón með eignum, ástandsmat þeirra, gerð viðhaldsáætlana, umsjón með framkvæmdum ásamt minniháttar viðhaldi. Á næstu vikum verða jafnframt kynntar frekari breytingar sem miða að því að bæta þjónustu sviðsins við íbúa og gera starf þess markvissara.

Af öðrum verkefnum má nefna að Míla er að ljúka við lagningu ljósleiðara á Hvammstanga og með þeirri framkvæmd verður ljósleiðaravæðingu í Húnaþingi vestra lokið. Einnig er RARIK að ljúka við jarðstrengjavæðingu í Hrútafirði og í ágúst hefjast framkvæmdir við lagningu strengs frá Laugarbakka yfir í Víðigerði þar sem verið er að styrkja hleðsluinnviði. Nú er Vegagerðin jafnframt að vinna að endurnýjun klæðingar á Hvammstangavegi, frá þjóðvegi 1 að Hvammstanga, verkefni sem átti að vinnast síðasta sumar en tafðist af óviðráðanlegum orsökum en vegurinn var víða orðinn hættulegur vegna sigs.

Eins og sjá má er heilmargt í gangi en ótalin eru smærri verkefni og verkefni vinnuskólans. Sem fyrr fögnum við öllum ábendingum um það sem betur má fara annaðhvort í síma 455-2400 eða með tölvupósti á netfangið skrifstofa@hunathing.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?