Opið samráð um samfélagsmiðstöð í Félagsheimilinu Hvammstanga

Opið samráð um samfélagsmiðstöð í Félagsheimilinu Hvammstanga

Opið samráð um samfélagsmiðstöð í Félagsheimilinu Hvammstanga

Húnaþing vestra kynnir til opins samráðs hugmyndateikningar að innanhússhönnun og skipulagi Félagsheimilisins Hvammstanga, þar sem unnið er að uppbyggingu nýrrar samfélagsmiðstöðvar.

Markmið samfélagsmiðstöðvarinnar er að skapa lifandi og fjölbreyttan samverustað fyrir íbúa á öllum aldri þar sem félags-, menningar- og tómstundastarf getur dafnað undir einu þaki.

Opið samráð

Hugmyndateikningar eru aðgengilegar hér til kynningar og umsagnar til og með 26. júlí 2026. Á því tímabili geta allir íbúar kynnt sér tillögurnar og komið á framfæri ábendingum og hugmyndum sem nýtast við áframhaldandi þróun verkefnisins. Einnig er hægt að skoða líkan af félagsheimilinu í afgreiðslu ráðhúss.

Íbúafundur

Til að kynna hugmyndirnar verður haldinn opinn íbúafundur fimmtudaginn 2. júlí 2026, kl. 17:00–18:00 í Félagsheimilinu Hvammstanga.

Á fundinum verða hugmyndateikningarnar kynntar og farið yfir helstu áherslur í skipulagi húsnæðisins. Íbúar fá jafnframt tækifæri til að spyrja spurninga, ræða hugmyndirnar og koma með ábendingar áður en endanleg útfærsla verður ákveðin.

Við hvetjum alla sem hafa áhuga á framtíð félagsheimilisins og samfélagsmiðstöðvarinnar til að taka þátt í samráðinu og leggja sitt af mörkum til að móta þetta mikilvæga verkefni fyrir Húnaþing vestra.

Fjölskyldusvið

Var efnið á síðunni hjálplegt?