Félagsmiðstöðin Órion óskar eftir starfsfólki sem hefur áhuga á að vinna með unglingum í 5.-10. bekk.

Félagsmiðstöðin Órion óskar eftir starfsfólki sem hefur áhuga á að vinna með unglingum í 5.-10. bekk…

Félagsmiðstöðin Órion býður börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Órion er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk sinnir með unglingunum.

Starfshlutföllin geta verið 15-30% og henta vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu. Vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá.
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga.
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum.
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan.
  • Sinnir vöktum í félagsmiðstöðinni, sértæku hópastarfi, námskeiðum, fræðslu, samvinnu við grunnskóla og öðru slíku.
  • Sækir fræðslu í samráði við annað starfsfólk sviðsins.
  • Sækir viðburði með börnum- og unglingum á vegum félagsmiðstöðvarinnar.
  • Sér um samfélagsmiðla fyrir Órion, t.a.m. Facebook, Instagram og Discord.
  • Sér um þrif í Órion.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur viðkomandi.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla.
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum æskileg.
  • Íslenskukunnátta.
  • Heiðarleiki, stundvísi, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva.
  • Almenn tölvukunnátta.
  • Er góð fyrirmynd.

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Tanja Ennigarð, íþrótta-og tómstundafulltrúi, í síma 858-1532 eða á netfanginu tanja@hunathing.is

 

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2022.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Samstöðu.

Var efnið á síðunni hjálplegt?