Tilkynningar og fréttir

Ráðning sveitarstjóra í Húnaþingi vestra

Guðný Hrund Karlsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Húnaþings vestra. Guðný Hrund hefur undanfarin tvö ár starfað sem verkefnastjóri hjá Wise í Kanada þar sem hún hefur leitt innleiðingu stórra hugbúnaðarverkefna fyrir þarlend fyrirtæki. 
readMoreNews
Unnur, Hallmundur, Björk, Kristín, Ólafur, Gréta, Gunnar, Ína og Erla.

Umhverfisviðurkenningar 2014

Umhverfisviðurkenningar 2014 voru veittar á fjölskylduhátíðinni „Eldur í Húnaþingi“ laugardaginn 26. Júlí s.l. 
readMoreNews

Orðsending til katta- og hundaeigenda á Hvammstanga

Kattaeigendur eru beðnir um að fylgjast vel með köttum sínum og tryggja að þeir séu merktir og  með bjöllur um hálsinn. Nú er sá árstími sem að fuglar eru að reyna að koma upp ungum sínum en kvartað hefur verið yfir því að margir ungar lendi í kattarkjafti. Kattaeigendur eru beðnir að virða Samþykkt um hunda- og kattahald í Húnaþingi vestra en þar segir í h lið 6. gr. “ Eigendum og umráðamönnum katta ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma og eftir atvikum takmarka útiveru katta, m.a. að næturlagi.
readMoreNews

Drög að reglum um skólaakstur í Húnaþingi vestra.

Ágætu foreldrar og íbúar Hér má sjá drög að reglum um skólaakstur í Húnaþingi vestra. Athugasemdum við drögin skal senda skólastjóra í síðasta lagi 24. júlí 2014. Bestu kveðjur Sigurður Þór Ágústsson Skólastjóri
readMoreNews
Laust starf í íþróttamiðstöð

Laust starf í íþróttamiðstöð

Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra óskar eftir að ráða öflugan einstakling í ca. 50% starf frá 1. september 2014. Umsækjendur skulu vera 18 ára og þurfa að standast stöðupróf í sundi.
readMoreNews

Umsækjendur um starf sveitarstjóra Húnaþings vestra

Starf sveitarstjóra Húnaþings vestra var auglýst laust til umsóknar um miðjan júní og rann umsóknarfrestur út 30. júní. Alls bárust 30 umsóknir, þrír drógu umsókn sína til baka.   Umsækjendur eru:
readMoreNews

Atvinna

Laust er til umsóknar starf við ræstingar í Héraðsbóka- og skjalasafni Húnaþings vestra að Höfðabraut 6 Hvammstanga.  Æskilegt að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
readMoreNews
Sviðsstjóri Framkvæmda- og umhverfissviðs

Sviðsstjóri Framkvæmda- og umhverfissviðs

Laust er til umsóknar starf sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs sveitarfélagsins Húnaþings vestra. Um er að ræða 100% starf í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Starfið heyrir beint undir sveitarstjóra Húnaþings vestra. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs. Sviðsstjóri ber ábyrgð gagnvart sveitarstjóra og sveitarstjórn í öllum störfum sínum og ákvörðunum.
readMoreNews
Sviðsstjóri Framkvæmda- og umhverfissviðs

Sviðsstjóri Framkvæmda- og umhverfissviðs

Laust er til umsóknar starf sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs sveitarfélagsins Húnaþings vestra. Um er að ræða 100% starf í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Starfið heyrir beint undir sveitarstjóra Húnaþings vestra. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs. Sviðsstjóri ber ábyrgð gagnvart sveitarstjóra og sveitarstjórn í öllum störfum sínum og ákvörðunum.   Starfssvið • Öll verkefni sem lúta að starfi skipulags- og byggingarfulltrúa m.a. veitingu byggingarleyfa • Sviðsstjóri á setu í framkvæmdaráði sveitarfélagsins ásamt sveitarstjóra, sviðsstjóra   fjármála- og stjórnsýslusviðs og sviðsstjóra fjölskyldusviðs • Ábyrgð á starfsemi þjónustumiðstöðvar á Hvammstanga, hafnar, eignasjóðs, brunavörnum,   fráveitu, hitaveitu, vatnsveitu, umhverfismálum, umferðar- og samgöngumálum,     framkvæmda og viðhaldsmálum sveitarfélagsins • Gerð fjárhagsáætlana í samvinnu við framkvæmdaráð, sveitarstjórn, rekstrarstjóra   framkvæmda- og umhverfissviðs og aðra starfsmenn sveitarfélagsins eftir því sem við á • Umsjón með lóðum og lendum sveitarfélagsins • Ábyrgð og eftirlit með öryggismálum • Sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs er jafnframt starfsmaður skipulags- og    umhverfisráðs Húnaþings vestra   Menntunar- og hæfniskröfur • Próf í rekstrar-, verk-, byggingar- eða tæknifræði sem nýtist í starfi • Réttindi skipulags- og byggingafulltrúa æskileg en ekki skilyrði • Reynsla af áætlanagerð, s.s. verk-, kostnaðar- og fjárhagsáætlanagerð • Leiðtogahæfni, jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum • Þekking og reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg • Þekking á sviði framkvæmda er nauðsynleg • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er  æskileg • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og  skipulagshæfni • Geta til að tjá sig í ræðu og riti   Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.   Umsóknarfrestur um starf sviðsstjóra Framkvæmda- og umhverfissviðs Húnaþings vestra er til og með 21. júlí  nk. Umsóknir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstangi. Öllum umsóknum verður svarað skriflega. Áhugasamir geta kynnt sér starfsemi Húnaþings vestra á heimasíðu sveitarfélagsins www.hunathing.is.  Nánari upplýsingar um starfið veitir  Unnur Valborg Hilmarsdóttir, oddviti í  síma 862-1340     Hvammstangi í Húnaþingi vestra er stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins með um 560 íbúa en íbúar í Húnaþingi vesta eru 1.160.  Hvammstangi er í alfaraleið, aðeins 6 km. frá þjóðvegi 1 og í u.þ.b. tveggja klst. akstursfjarlægð frá Reykjavík og Akureyri. Í Húnaþingi vestra er til staðar öll almenn opinber þjónusta auk annarrar fjölbreyttrar þjónustu. Möguleikar til útivistar, íþrótta, afþreyingar og félagsstarfa eru fjölmargir og því er Húnaþing vestra góður búsetukostur fyrir fjölskyldufólk.
readMoreNews
Framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) auglýsa eftir framkvæmdastjóra. SSNV er þjónustu- og samstarfsvettvangur sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra og sér um mikilvæga sameiginlega málaflokka og hagsmunamál sveitarfélaga á starfssvæðinu. 
readMoreNews