Ráðning sveitarstjóra í Húnaþingi vestra

Guðný Hrund Karlsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Húnaþings vestra. Guðný Hrund hefur undanfarin tvö ár starfað sem verkefnastjóri hjá Wise í Kanada þar sem hún hefur leitt innleiðingu stórra hugbúnaðarverkefna fyrir þarlend fyrirtæki. Áður starfaði hún fyrir Maritech á Íslandi sem viðskipta- og verkefnastjóri. Á árunum 2002-2006 starfaði hún sem sveitarstjóri á Raufarhöfn og stýrði sveitarfélaginu farsællega á erfiðum tímum. Guðný Hrund hefur gegnt fjölmörgum trúnaðar og ábyrgðarstörfum, svo sem hlutverki hafnarstjóra, setið í stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, í stjórn ábyrgðarsjóðs launa og sem varamaður í stjórn samkeppniseftirlitsins. Hún er með Cand. Oecon próf í viðskiptafræðum af fjármálasviði. Áformað er að hún hefji störf þann 1. ágúst 2014

Var efnið á síðunni hjálplegt?