Umhverfisviðurkenningar 2014

Unnur, Hallmundur, Björk, Kristín, Ólafur, Gréta, Gunnar, Ína og Erla.
Unnur, Hallmundur, Björk, Kristín, Ólafur, Gréta, Gunnar, Ína og Erla.

Árlega veitir Húnaþing vestra þeim aðilum viðurkenningu sem þótt hafa verið til fyrirmyndar við fegrun og hirðingu lóða/landareigna sinna. Nefnd vegna umhverfisviðurkenninga er skipuð af sveitarstjórn og heldur nefndin utan um valið. Nefndin samanstendur af Ínu Björk Ársælsdóttur, Umhverfisstjóra, Erlu Björg Kristinsdóttur, Jóhannesi Erlendssyni og Sigríði Hjaltadóttur. Umhverfisviðurkenningar 2014 voru veittar á fjölskylduhátíðinni „Eldur í Húnaþingi“ laugardaginn 26. Júlí s.l. Í flokki fyrirtækjalóða/atvinnuhúsnæðis hlaut Leirhús Grétu – Litla Ósi viðurkenningu fyrir skemmtilegt samspil íbúðarhúsnæðis og galleríis/vinnustofu, sem skapar fallega ásýnd og aðkomu viðskiptavina, Eigendur Gréta Jósefsdóttir og Gunnar Þorvaldsson. Í flokki einkalóða var valin Hlíðarvegur 11, Hvammstanga fyrir fallega, gróna og vel hirta einkalóð, eigendur Björk Magnúsdóttir og Hallmundur Guðmundsson. Í flokki bændabýla varð fyrir valinu Miðhóp í Víðidal fyrir snyrtilega aðkomu, fallegan og gróin einkagarð við íbúðarhúsið. Mikil skjólbeltaræktun gerir umhvefið aðlaðandi hlýlegt, Eigendur Elín Kristín Guðmundsdóttir og Ólafur Benediktsson.

Allar þessar lóðir/landareignir bera eigendum sínum gott vitni um atorku og umhyggju fyrir fallegu og snyrtilegu umhverfi.

Unnur Valborg Hilmarsdóttir oddviti Húnaþings vestra, afhenti vinningshöfunum innrammað viðurkenningarskjal og konfektkassa í viðurkenningarskyni.

IMG_4761_c.jpg

Unnur, Hallmundur, Björk, Kristín, Ólafur, Gréta, Gunnar, Ína og Erla.

Var efnið á síðunni hjálplegt?