Vegagerðin hefur auglýst útboð á endurbyggingu Vatnsnesvegar milli Kárastaða og Skarðs, alls um 7,1 km. Auglýsingin með helstu magntölum er aðgengileg hér. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. september 2024.
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 14 þann 4. apríl nk.
Ástæða er til að vekja athygli á að umsóknarfrestur í Orkusjóð er til 19. apríl nk. Sjóðurinn veitir almenna styrki til orkuskipta, m.a. til tækjabúnaðar sem nýtir endurnýjanlega orku í stað olíu og innviði fyrir orkuskipti (hleðslustöðvar). Við hvetjum rekstraraðila í sveitarfélaginu til að kynna s…
Sveitarfélagið Húnaþing vesta er í samstarfi við Gretu Clough og listamanninn Juanjo Ivaldi Zaldívar. Með samstarfi þessara þriggja aðila er ætlunin að gera ljósmyndasýningu sem opnuð verður á Unglist- Eldur í Húnaþingi 2023. Einnig kemur vonandi út bók um konur af erlendum uppruna sem búsettar eru …
Við leitum að drífandi einstaklingi til að sinna fjölbreyttu starfi verkefnisstjóra umhverfismála á umhverfissviði Húnaþings vestra með megin starfsstöð í ráðhúsi sveitarfélagsins á Hvammstanga. Verkefnisstjóri á umhverfissviði ber ábyrgð á útliti og ásýnd sveitarfélagsins með verkefnum sem lúta að …
Laus staða skólastjóra við Grunnskóla Húnaþings vestra
Laus er til umsóknar staða skólastjóra Grunnskóla Húnaþings vestra á Hvammstanga. Leitað er að leiðtoga með mikinn metnað fyrir menntun barna og unglinga sem hefur framsækna sýn á skólastarf og farsæld barna. Lögð er áhersla á öfluga skólaþróun, hvetjandi starfsumhverfi fyrir nemendur og starfsfólk …