Heimsókn öldungaráðs Skagafjarðar

Heimsókn öldungaráðs Skagafjarðar

Fulltrúar úr öldungaráði Húnaþings vestra tóku á móti öldungaráði Skagafjarðar þann 21.mars sl. þar sem ráðsfólk átti gott samtal um verkefni og stefnumótun í málefnum eldra fólks. Öldungaráð Húnaþings vestra hefur verið starfandi frá árinu 2019 og fór yfir verkefni og hlutverk ráðsins. Eitt af verkefnum Öldungaráðs Húnaþings vestra er þátttaka í samráði sveitarfélagsins um framtíðarsýn í málefnum eldri borgara sem verið er að vinna að og kynnt var sérstaklega. Að lokum fundi var ráðsfólki boðið í heimsókn í aðstöðu Félags eldri borgara í gamla verslunarhúsnæði Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga en þar fer fram fjölbreytt félagsstarf alla virka daga.

Á myndinni frá vinstri eru eftirfarandi: Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, Ragna Jóhannsdóttir, Stefanía Sif Traustadóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Gunnsteinn Björnsson, Stefán A. Steingrímsson, Gestur Þorsteinsson, Jóna Halldóra Tryggvadóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Sigurjón Gestsson.

Var efnið á síðunni hjálplegt?