Laus staða í leikskólanum Ásgarði

Laus staða í leikskólanum Ásgarði

Leikskólakennarar – leiðbeinendur

Við leikskólann Ásgarð er laus staða

  • Ein 100% staða leikskólakennara/leiðbeinenda tímabundin ráðning til 4. júlí 2023 með mögleika á framtíðarstarfi.

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða aðra menntun
  • Áhuga á að starfa með börnum
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Fagmennska
  • Skipulagshæfileika
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
  • Gleði og jákvæðni

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru öll kyn hvött til að sækja um störfin.

Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/

Hugmyndafræði skólans byggir á kenningum Mihaly Csikszentmihalyi, flæði.

Umsóknafrestur er til 20. ágúst næstkomandi og og mun viðkomandi hefja störf 1. september. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast í leikskólann Ásgarð Garðavegi 7, 530 Hvt. eða rafrænt á leikskoli@hunathing.is

Frekari upplýsingar veitir Kristinn Arnar Benjamínsson, 451-2343 eða 845-1122

 

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.

Var efnið á síðunni hjálplegt?