Tilkynningar og fréttir

Umhverfisdagur

Í tengslum við verkefnið Skólar á grænni grein sem leikskólinn Ásgarður er þátttakandi í höldum við umhverfisdag í Ásgarði  fimmtudaginn 2. júní næst komandi.
readMoreNews

Tilkynning frá íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga

Sumaropnun tekur gildi frá 1.júní  og verður sem hér segir: 1. júní - 31. ágúst 2016 Mánudaga - föstudaga: 07:00-21:00 Laugardaga-sunnudaga:10:00-18:00
readMoreNews

Garðsláttur fyrir elli- og örorkulífeyrisþega

Svokallaður sláttuhópur á vegum Húnaþings vestra mun ekki sinna garðslætti fyrir elli- og örorkulífeyrisþega í sumar eins og fyrri ár, vegna hversu fámennt er í vinnuhópnum.
readMoreNews

Skólaslit Grunnskóla Húnaþings vestra

Grunnskóla Húnaþings vestra verður slitið föstudaginn 3. júní í Íþróttamiðstöð Hvammstanga kl. 10:00. Allir velkomnir. Minnt er á óskilamuni sem hægt er að nálgast í skólanum fimmtudaginn 2. júní frá 8:00 - 16:00 og 3. júní frá 9:00 - 12:00. Að þeim tíma liðnum fer óskilafatnaður til Rauða krossins. Skólastjóri
readMoreNews

Endanleg úrslit í sundkeppni sveitarfélaganna

Úrslit eru komin í ljós í sundkeppni sveitarfélaga í hreyfiviku 2016 Eftir frábæra keppni náði Húnaþing vestra 4. sætinu með 184 synta metra á hvern íbúa og samtals 101.560 kílómetrar. Til hamingju ! Úrslitin má sjá hérna
readMoreNews

Staða í sundkeppni sveitarfélaganna

Nú er aðeins lokaspretturinn eftir í sundkeppninni.  Við stóðum okkur vel í gær og fórum úr 10. sæti upp í 6. sæti með 78 synta metra á íbúa. En við getum gert betur og væri ekki gaman að ná 4. sætinu?
readMoreNews

Tillögur að nafni fyrir Grunnskóla Húnaþings vestra

Tillögum að nafni á Grunnskóla Húnaþings vestra er hægt að koma á framfæri á vefsíðum skólans og Húnaþings vestra undir tenglinum Nafnatillögur grunnskóla 2016.
readMoreNews

Tilkynning frá Hitaveitu Húnaþings vestra

Vegna vinnu við hitaveitulögn verður lokað fyrir heitt vatn á Norðurbraut, Nestúni og Grundartúni frá kl 11:00-13:00 í dag fimmtudaginn 26.05.2016. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Hitaveita Húnaþings vestra
readMoreNews

Sundkeppni sveitarfélaganna dagur 2

Húnaþing vestra er á öðrum degi í 6. sæti í sundkeppni sveitarfélaganna Sjá niðurstöður hér
readMoreNews

Fyrirlestur með Loga Geirssyni í íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga

Við viljum minna á fyrirlestur Loga Geirssonar sem verður haldinn í íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga í kvöld klukkan 19:30.
readMoreNews