Tillögur að nafni fyrir Grunnskóla Húnaþings vestra

Tillögur að nafni fyrir Grunnskóla Húnaþings vestra

 

Tillögum að nafni á Grunnskóla Húnaþings vestra er hægt að koma á framfæri á vefsíðum skólans og Húnaþings vestra undir tenglinum Nafnatillögur grunnskóla 2016.

Opið verður fyrir tillögur frá 27. maí til 12. júní 2016.  Að þeim tíma liðnum verður farið yfir tillögurnar og 1 - 4 tillögum stillt upp til kosninga um nafn á skólanum.

Allir sem hafa áhuga á eru hvattir til þess að koma með tillögur sem eru lýsandi og þjálar fyrir skólann, samfélagið og það umhverfi sem við búum í.

Skólastjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?