Garðsláttur fyrir elli- og örorkulífeyrisþega

Svokallaður sláttuhópur á vegum Húnaþings vestra mun ekki sinna garðslætti fyrir elli- og örorkulífeyrisþega í sumar eins og fyrri ár, vegna skorts á vinnuafli.

Sveitarfélagið mun greiða elli- og örorkulífeyrisþegum styrk sem nemur 3500.- fyrir hvern slátt sem þeir kaupa af verktaka, gegn framvísun reiknings. Hámarksstyrkur á ári verður kr. 14.000.-.

Elli- og örorkulífeyrisþegar leita sjálfir til verktaka sem bjóða upp á garðslátt og greiða reikninginn, en geta síðan komið með kvittun/kvittanir á skrifstofu sveitarfélagsins og fengið styrkinn greiddan inn á bankareikning.

Umhverfisstjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?