FJALLSKILABOÐ Miðfirðinga 2015
Tímanlega fimmtudaginn 3. september n.k. skulu allir leitarmenn vera mættir á fremstu bæjum, tilbúnir að leggja upp á heiðar undir stjórn leitarstjóranna. Gangnamenn yngri en 16 ára verða ekki teknir gildir sem leitarmenn nema með samþykki viðkomandi leitarstjóra. Í 1. leit skal smala ofan bæði sauðfé og hrossum. Skulu hross af öllum viðkomandi heiðum sett til geymslu í girðinguna norðan við Laxahvamm. Gangi leitir samkvæmt áætlun, skulu þeir sem reka stóðið frá heiðargirðingum í safngirðingu að kvöldi 4. sept. koma því til réttar laugardaginn 5. sept. kl. 9 f.h. og hefst þá stóðrétt. Fjárrétt hefst síðar sama dag, strax og söfnin koma til réttar.
12.08.2015
Frétt