STARF VIÐ FÉLAGSLEGA HEIMAÞJÓNUSTU

Við félagsþjónustu Húnaþings vestra er laus staða í félagslegri heimaþjónustu.

Um er að ræða 50% starf frá 24. ágúst og til frambúðar.  Starfið felst aðallega í því að sjá um almenn þrif í heimahúsum, fara í sendiferðir (t.d. innkaup) og veita persónulega aðstoð.

Þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum og almenn kunnátta við þrif eru nauðsynleg.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands.

Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Henrike Wappler, umsjónarfélagsráðgjafa, í síma 455-2400Umsóknafrestur er til 15. ágúst næstkomandi og skulu umsóknir berast skrifstofu Húnaþings vestra, Ráðhúsinu, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.

Var efnið á síðunni hjálplegt?