Kaffihús! Kaffihús!
9. bekkur verður með kræsingar uppi í skóla sem fjáröflun. kl. 13.00-15.00, þriðjudaginn 2. júní. Enginn posi á staðnum. Verð 500 kr.
Árlegur vorfundur SSSFS sem eru samtök starfsmanna á stjórnsýslu og fjármálasviði sveitarfélaga var að þessu sinni haldinn í Húnaþingi vestra dagana 15. og 16. maí sl. Sveitarfélagið Húnþing vestra sá um skipulag og umsýslu fundarins.
Sumaropnunartími tekur gildi þann 1. júní nk. og verður sem hér segir
1. júní- 31. ágúst:
Mánudaga - föstudaga: 07:00-21:00Laugardaga-sunnudaga:10:00-18:00
Skólastarfi í Grunnskóla Húnaþings vestra 2014 - 2015 verður slitið fimmtudaginn 4. júní kl. 12:00 með athöfn í íþróttahúsinu á Hvammstanga. Allir velkomnir.
Áætlað er að athöfninni ljúki um kl. 13:00.
Ekki verður skólaakstur á skólaslitadaginn.
Auglýst hefur verið Kynnisferð um Húnaþing vestra, laugardaginn 30.maí. (sbr.Sjónaukinn 20.05.2012)
Framtaksmenn eru; Karl Ásgeir Sigurgeirsson leiðsögumaður og Þorbjörn Ágústsson hópferða bílstjóri.
Ferðin er einkum hugsuð til að kynna héraðið, land og sögu, fyrir aðfluttu fólki og einnig þeim sem starfa í ferðaþjónustu, m.a. til að geta leiðbeint hinum sívaxandi fjölda ferðamanna sem sækja okkur heim.
Húnaþing vestra hefur í samstarfi við Umf. Kormák ákveðið að gera tilraun með frístundastarf í júní fyrir börn fædd á árunum 2008 – 2003 (1. – 6. bekk) í húsnæði grunnskólans á Hvammstanga.