Lausar stöður við Grunnskóla Húnaþing vestra

Lausar stöður við Grunnskóla Húnaþing vestra

Við Grunnskóla Húnaþings vestra eru lausar eftirtaldar stöður

  • 80% staða stuðningsfulltrúa á unglingastigi. Um er að ræða starf allt árið. Utan starfstíma skólans er unnið við aðalhreingerningu og frístundastarf. Gert er ráð fyrir að unnið verði í matar og kaffitímum með nemendum og vinnutíma lýkur fyrr á daginn sem því nemur.
  • 50% staða stuðningsfulltrúa á unglingastigi. Um er að ræða starf allt árið. Utan starfstíma skólans er unnið við aðalhreingerningu og frístundastarf.
  • 60-70% staða skólaliða. Um er að ræða starf allt árið í frímínútnagæslu og eftirliti með nemendum frá kl. 9:00 – 14:00. Utan starfstíma skólans er unnið við aðalhreingerningu og frístundastarf. Gert er ráð fyrir að unnið verði í matar og kaffitímum með nemendum og vinnutíma lýkur fyrr á daginn sem því nemur.

 

Við leitum að einstaklingum með

Skipulagshæfileika, lipurð í mannlegum samskiptum, hæfni til að sýna frumkvæði í starfi og taka þátt í samstarfi.

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin.

Frekari upplýsingar veitir Sigurður Þór Ágústsson skólastjóri 4552911/8625466

Umsóknafrestur er til 19. júlí næstkomandi. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Ráðhúsinu, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða á netfangið grunnskoli@hunathing.is.

Skólastjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?