Föstudaginn 27. desember og mánudaginn 30. desember er Ráðhúsið opið eins og venjulega.
Ráðhúsið verður lokað aðfangadag 24. desember og gamlársdag 31. desember.
Ítrekað rafmagnsleysi varð í nótt vegna bilunar á milli Hrútatungu og Laugarbakka. Fór rafmagn af í Miðfirði, Hrútafirði, Hvammstanga og Vatnsnesi. Engin tilkynning var á vef RARIK í nótt en í morgun bárust skilaboð um að bilunin hafi verið einangruð og rafmagn komist á aftur um 4:50.
Ekki liggja f…
Eins og fyrri ár tökum við saman dagskrá yfir þá fjölmörgu viðburði sem á dagskrá verða í desember í Húnaþingi vestra. Listinn er aðgengilegur bæði hér að neðan og á facebook síðu sveitarfélagsins. Hann er uppfærður reglulega eftir því sem viðburðir bætast við. Eins og sjá má er af nægu að taka.
Nj…
Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði
Leikskólakennarar/leiðbeinendur
Við leikskólann Ásgarð eru laust tímabundið 100% stöðugildi til 16. júní 2025.
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum.
…
Húnaþing vestra tekur þátt í rafrænu geðheilsuátaki
Húnaþing vestra hefur gert samkomulag við Mental ráðgjöf um þáttöku í Rafrænu geðheilsuátaki sem nær til starfsmanna sveitarfélagsins. Er sveitarfélagið fyrsti vinnustaðurinn á Íslandi til að taka rafræna átakið í notkun.
Með þátttökunni vill sveitarfélagið sýna skýra skuldbindingu sína til að set…
Opið hús á slökkvistöðinni Höfðabraut 31
Föstudaginn 20.desember frá kl 17.00 – 18.00 langar okkur að bjóða ykkur íbúum í heimsókn á slökkvistöðina og fræðast um starfsemina, fagna nýjum búnaði og bifreiðum slökkviliðs og fræðast í leiðinni um brunavarnir heimilisins þegar hátíð gengur í garð.
Hlö…
Nytjamarkaðurinn á Hvammstanga er mörgum af góðu kunnur. Hann er rekinn af Gærunum, vöskum hópi kvenna sem hafa lagt áherslu á að gefa aftur út í samfélagið til hinna ýmsu framfaramála þann ágóða sem er af rekstri markaðarins. Slagorð þeirra er „Eins rusl er annars gull“. Eru það orð að sönnu því á …
Á dögunum færðu félagar í Lionsklúbbnum Bjarma Brunavörnum Húnaþings vestra 400 þúsund króna styrk til búnaðarkaupa. Styrkurinn verður nýttur til kaupa á hlífðarfatnaði fyrir slökkviliðsmenn. Slíkur búnaður er nauðsynlegur til að tryggja öryggi slökkviliðsmanna á vettvangi og er mjög dýr auk þess se…
Höfðinglegur styrkur til Velferðarsjóðs Húnaþings vestra
Höfðinglegur styrkur til Velferðarsjóðs Húnaþings vestra
Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka kom á fund stjórnar Velferðarsjóðs Húnaþings vestra fimmtudaginn 12. desember sl. og færði sjóðnum að gjöf kr. 700.000.
Ólöf hefur unnið að gerð bútasaumsteppa undanfarin ár og hafa þau verið afar vinsæl bæð…