Birnur sigra á Öldungamóti BLÍ

Keppendur á Öldungi 2025. Mynd: Fanney Indriðadóttir.
Keppendur á Öldungi 2025. Mynd: Fanney Indriðadóttir.

Öldungamót Blaksambands Íslands er haldið á vorin í kringum Sumardaginn fyrsta og 1. maí og er eitt stærsta íþróttamót landsins með yfir 1.000 keppendur að jafnaði ár hvert. Aldurstakmarkið til að eiga keppnisrétt á mótinu er 30 ára á árinu.

Fyrsta grein reglugerðar mótsins er lýsandi fyrir markmið þess og anda en í henni segir; „Mótið heitir Öldungamót BLÍ. Markmið þess er að útbreiða blakíþróttina, stuðla að framförum í tækni og viðhalda getu keppenda. Mótið skal vera vettvangur jákvæðra samskipta milli blaköldunga af öllu landinu með leikgleðina að leiðarljósi."

Tvö lið úr Húnaþingi vestra mættu til leiks að þessu sinni. Kvennaliðið var skipað Tönju, Gerði Rósu, Guðrúnu Gróu, Sveinbjörgu, Guðrúnu Ósk, Fanney, Sigurbjörgu og Stínu. Í karlaliðinu voru Mikki, Gísli, Valur, Sveinn, Krissi, Jói, Brynjar og Óli Ben.

Í reglum mótsins er kveðið á um að ef lið mætir ekki á Öldung eitt árið þá byrjar það aftur í neðstu deildunum næsta ár á eftir. Ekkert lið fór frá Húnaþingi vestra í fyrra og því lék kvennalið okkar í  9. flokki af 10 flokkum. Á sínum tíma þegar blakstarfið var hvað öflugast með Vigdísi í fararbroddi var kvennalið Birna búið að vinna sér inn þátttökurétt í fimmta flokki.

Birnur tóku sig til á mótinu í ár og báru sigur úr býtum í sínum flokki á mótinu og spila því í áttunda flokki á næsta ári. Tvö efstu liðin fara upp um deild á hverju ári og tvö neðstu niður um deild.

Karlaliðið tók þátt í ár eftir margra ára hlé, þeir spiluðu í 6. flokki, náðu ekki að vinna leik en sýndu mikla leikgleði og voru algjörir stuðboltar á mótinu í Kafteins ofurbrókar búning sínum. 

Öldungur í ár hafði yfirskriftina Stuðboltinn 2025. Á hverju ári er ákveðið þema og í ár var það "ofurhetjur". Voru liðin hvött að mæta í búningum sem tengdust þemanu til að mynda stemmningu. Okkar lið létu ekki sitt eftir liggja í þeim efnum og voru búningarnir teknir alla leið ef svo má segja.  Gerður Rósa stakk upp á því að liðin myndu klæðast eins og Kafteinn ofurbrók, í stórri nærbrók með skikkjur. Sló það algjörlega í gegn og fengu liðin allstaðar hrós fyrir frábæra búningahugmynd.

Við óskum Birnum til hamingju með sigurinn og báðum liðum með vasklega framgöngu í mótinu og mikla leikgleði.

Var efnið á síðunni hjálplegt?