Sumaropnunartími tekur gildi þann 1. júní nk. og verður sem hér segir
1. júní- 31. ágúst:
Mánudaga - föstudaga: 07:00-21:00Laugardaga-sunnudaga:10:00-18:00
Skólastarfi í Grunnskóla Húnaþings vestra 2014 - 2015 verður slitið fimmtudaginn 4. júní kl. 12:00 með athöfn í íþróttahúsinu á Hvammstanga. Allir velkomnir.
Áætlað er að athöfninni ljúki um kl. 13:00.
Ekki verður skólaakstur á skólaslitadaginn.
Auglýst hefur verið Kynnisferð um Húnaþing vestra, laugardaginn 30.maí. (sbr.Sjónaukinn 20.05.2012)
Framtaksmenn eru; Karl Ásgeir Sigurgeirsson leiðsögumaður og Þorbjörn Ágústsson hópferða bílstjóri.
Ferðin er einkum hugsuð til að kynna héraðið, land og sögu, fyrir aðfluttu fólki og einnig þeim sem starfa í ferðaþjónustu, m.a. til að geta leiðbeint hinum sívaxandi fjölda ferðamanna sem sækja okkur heim.
Húnaþing vestra hefur í samstarfi við Umf. Kormák ákveðið að gera tilraun með frístundastarf í júní fyrir börn fædd á árunum 2008 – 2003 (1. – 6. bekk) í húsnæði grunnskólans á Hvammstanga.
Húnaþing vestra auglýsir eftir byggingarfulltrúa.
Leitað er eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa nýtt starf á traustum grunni. Byggingarfulltrúi ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja, úttektum, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa. Um er að ræða 100% starf.
Sveitarstjórn Húnaþings samþykkti á fundi sínum þann 27. apríl sl. að auglýsa eftir umsóknum um úthlutun styrkja úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra. Athygli er vakin á því að minniháttar breytingar hafa verið gerðar á úthlutunarreglunum frá fyrra ári.
Frístundastarf í júní – tilraunaverkefni í sumar
Húnaþing vestra hefur í samstarfi við Umf. Kormák ákveðið að gera tilraun með frístundastarf í júní fyrir börn fædd á árunum 2008 – 2003 (1. – 6. bekk) í húsnæði grunnskólans á Hvammstanga.