Afsláttur af gatnagerðagjöldum
Vegna mikillar eftirspurnar eftir leiguhúsnæði en lítillar eftirspurnar eftir lóðum fyrir íbúðahús samþykkti sveitarstjórn Húnaþings vestra að nýta tímabundið heimild til niðurfellingar gatnagerðargjalda í samræmi við 6. gr. laga nr. 153/2006 og 6. gr. samþykktar Húnaþings vestra um gatnagerðargjöld nr. 717/2013. Um er að ræða 17 íbúðahúsalóðir á götum á Hvammstanga sem þegar eru tilbúnar til úthlutunar.
20.09.2016
Frétt