Hitamenning

Hitamenning

IMG_hitamenning.JPGIMG_Hitamennig1.JPG

Sl. þriðjudag, 6. september sl. var haldinn fundur um hitamenningu í félagsheimilinu á Hvammstanga.

Mæting á fundinn var góð og fundarmenn almennt ánægðir með fróðleg og skemmtileg erindi. 

Á fundinn mættu þeir Benedikt Guðmundsson og Sigurður Ingi Friðleifsson frá Orkustofnun og ræddu um orkusparnað og verð á hita- og raforku.  Ólafur Jakobsson byggingarfulltrúi Húnaþings vestra ræddi um einangrun, raka og loftun, neysluvatn og byggingarleyfi vegna breytinga, og Skúli Húnn Hilmarsson rekstrarstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs fór yfir virkni orkumæla sem verið er að setja upp í sveitarfélaginu í stað rúmmetramæla.

Haldinn verður fundur um sama málefni í félagsheimilinu Víðihlíð þann 25. október nk. 

 

Í dag og næstu daga verður borinn út bæklingurinn Hitamenning, bætt húshitun og lækkun hitakostnaðar.   Við hvetjum íbúa Húnaþings vestra til að skoða bæklinginn vel og nota tækifærið til að fara vel yfir hitakerfin hjá sér með hliðsjón af þeim ábendingum sem koma fram í bæklingnum.  

Var efnið á síðunni hjálplegt?