Nýtt hlaupabretti í þreksal íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra
Í febrúar 2012 samþykkti sveitarstjórn Húnaþings vestra að ráðstafa endurgreiðslu frá Landsbankanum í fjölbreytt samfélagsverkefni sem með einum eða öðrum hætti snerta íbúa Húnaþings vestra. Eitt af þeim verkefnum var að festa kaupa á nýju hlaupabretti í þrektækjasal Íþróttamiðstöðvarinnar.
Fræðslu- og velferðarsvið Húnaþings vestra auglýsir eftirfarandi störf til umsóknar
Leikskólinn Ásgarður. Aðstoðarleikskólastjóra í 100% starf frá 1. ágúst og leikskólakennara í 60% starf frá 15. ágúst. (tímabundið til eins árs með möguleika á framtíðarráðningu) á Borðeyri/Hvammstanga.
Fræðslu- og velferðarsvið Húnaþings vestra auglýsir eftirfarandi störf til umsóknar
Grunnskóli Húnaþings vestra. Grunnskólakennara í 100% starf frá 1. ágúst(afleysing til eins árs). Kennslugreinar danska og náttúrufræði. Tvo stuðningsfulltrúa á miðstigi og skólaliða frá 15. ágúst. Möguleiki á samþættingu.
Húnaþing vestra mun starfrækja vinnuskóla í sumar fyrir 13-16 ára ungmenni. Vinnuskólinn verður starfræktur frá 5. Júní – 15. Ágúst. Vinnutími er frá klukkan 8:30 til 12:00 árdegis og 13:00 til 16:00 síðdegis, frá mánudegi til fimmtudags. Verkbækistöð er að Norðurbraut 10, Hvammstanga. Verið er að kanna möguleika á starfsstöð á Borðeyri.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki óskar eftir að ráða umsjónarmann dreifnáms á Hvammstanga.Umsóknarfrestur er til 14. júní 2012.Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en umsókn þarf að fylgja afrit af prófskírteini auk yfirlits um fyrri störf. Umsókn skal senda til skólame…
Búfjáreigendum á Hvammstanga er hér með tilkynnt að sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur samþykkt að banna upprekstur búfjár í Kirkjuhvammi sumarið 2012 þar til úttekt á gróðurfari og beitarþoli jarðarinnar hefur farið fram og gefnar hafa verið út dagsetningar um heimild til upprekstrar sauðfjár og hrossa.
Þann 8. apríl síðastliðinn voru vorpróf og vortónleikar í grunnskólanum á Borðeyri og á morgun, þann 11. maí kl. 17:00, verða vortónleikar í félagsheimilinu Ásbyrgi. Þar verða 5 nemendur úr 10. bekk sem koma fram og spila saman. Laugardaginn 12. maí verða svo aðrir þrennir tónleikar í Ásbyrgi frá kl. 13 – 17.