Umsjónarmaður dreifnáms óskast á Hvammstanga

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki óskar eftir að ráða umsjónarmann dreifnáms á Hvammstanga.

Umsóknarfrestur er til 14. júní 2012.

Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en umsókn þarf að fylgja afrit af prófskírteini auk yfirlits um fyrri störf. Umsókn skal senda til skólameistara (ingileif@fnv.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst m.a. dagleg umsjón með nemendum og líðan þeirra í námsveri á Hvammstanga, eftirlit með skólasókn, aðstoð við nemendur í kennslustundum, samskipti við kennara FNV, seta í kennslustundum í námsveri og í námslotum á Sauðárkróki, agastjórnun og dagleg umsjón með námsveri og tækjabúnaði námsvers.

Hæfnikröfur

Við leitum að fjölhæfum umsækjanda sem á gott með að umgangast ungt fólk og er tilbúinn til að taka þátt í mótun á fyrirkomulagi dreifnáms í Húnaþingi vestra. Æskilegt er að umsækjandi hafi háskólapróf á uppeldissviði..

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.06.2012

Nánari upplýsingar veita

Ingileif Oddsdóttir – ingileif@fnv.is – 455-8000
Þorkell V. Þorsteinsson – keli@fnv.is – 455-8000

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
v. Sæmundarhlíð
550 Sauðárkróki

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?