Samningur um snjómokstur á Hvammstanga
Þann 24. október sl. var skrifað undir samning um snjómokstur á Hvammstanga. Samningurinn gildir til ársins 2019, með möguleika á framlengingu um eitt ár. Húnaþing vestra og Vegagerðin óskuðu sameiginlega eftir tilboðum í snjómokstur, en Vegagerðin hefur séð um mokstur á Hvammstangabraut og Norðurbraut, þjóðvegi 72, frá árinu 2014.
03.11.2016
Frétt