Uppskeruhátíð þróunarverkefnis Málörvun og læsi, færni til framtíðar

Uppskeruhátíð þróunarverkefnis Málörvun og læsi, færni til framtíðar

Uppskeruhátíð

Leikskólinn Ásgarður hefur unnið að þróunarverkefni síðustu tvö ár í samstarfi við leikskóla í austur Húnavatnssýslu og Strandabyggð sem ber heitið Málörvun og læsi, færni til framtíðar. Ásthildur Bj.Snorradóttir talmeinafræðingur var fengin sem verkefnastjóri og hefur unnið með fulltrúum leikskólanna í þróunarverkefninu.

Skólarnir hafa lokið þróunarverkefninu með gerð handbókar þar sem fram kemur hvernig málörvun fer fram og einnig foreldrasamstarf.

Starfsfólk skólanna fagnaði lokum verkefnisins með uppskeruhátíð á Hótel Laugarbakka föstudaginn 22.september að skóladegi loknum. Ingibjörg Huld Þórðardóttir talmeinafræðingur hélt þar fyrirlestur um málörvun barna. Síðan voru málstofur þar sem kennarar skólanna voru með innlegg um hvernig unnið er með málörvun.  Uppskeruhátíðinni lauk með kvöldverði og skemmtun starfsfólks á Hótel Laugarbakka.   Heiðursgestur var Ásthildur Bj. Snorradóttir

Sjá heimasíðu Ásgarðs http://asgardur.leikskolinn.is/

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?