Húnaþing vestra óskar eftir tilboðum í verkið Kirkjuvegur 1 Hvammstanga Viðbygging Grunnskóla.
Verklok 30.11.2020
Verkið felst í uppsteypu og þakfrágangi. Viðbyggingin verður norðan við núverandi skóla. Viðbyggingin er ein hæð með kjallara að hluta. Byggingin er 1200 fm 1. hæð og 240 fm kjallari.…
Í gær barst sveitarstjóra bréf þar sem forseti Íslands sendir íbúum Húnaþings vestra hlýjar kveðjur og góðar óskir.
Færum forseta Íslands þakkir fyrir hlýjar kveðjur.
Föstudaginn 20. mars 2020 verður lokað fyrir lúgur á girðingu Hirðu. Um er að ræða lúgur fyrir endurvinnsluefni og heimilissorp. Um tímabundna ráðstöfun er að ræða til að vernda bæði notendur og starfsmenn á meðan veirufaraldurinn gengur yfir.
Á opnunartíma Hirðu er hægt að koma með allan úrgang. …
Sorphirða á Hvammstanga og Laugarbakka fer fram föstudaginn 20. mars nk.Sem fyrr er nauðsynlegt að moka frá sorptunnum og tryggja greitt aðgengi að tunnunum svo hirðan gangi vel fyrir sig. Þar sem ekki er mokað má búast við að ekki verði hirt.Umhverfissvið
Kæru íbúar.
Skjótt skipast veður í lofti.
Í gær var fyrsta smitið vegna Covid-19 greint í sveitarfélaginu okkar. Í gærkvöldi fóru 57 einstaklingar í sóttkví. Hefur þeim fjölgað verulega í dag og eru nú rúmlega 230 einstaklingar í sóttkví eða um 20% íbúa sveitarfélagsins.
Starfsmenn og nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra í sóttkví
Ákvörðun hefur verið tekin í samráði við fulltrúa almannavarna og sóttvarnalæknis að allir nemendur og starfsmenn Grunnskóla Húnaþings vestra fari í sóttkví til og með 30. mars 2020.