Sveitarstjórn

407. fundur 15. október 2026 kl. 15:00 - 16:34 að Höfðabraut 6
Nefndarmenn
  • Sigurður Líndal Þórisson oddviti
  • Örn Arnarson varaoddviti
  • Eygló Hrund Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
  • Nína Axelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Ólafsdóttir aðalmaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Oddviti leggur fram eftirfarandi bókun: „Fyrir hönd sveitarstjórnar vil ég þakka Landsbankanum og Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir greiðvikni og aðgang að fundarsal að Höfðabraut 6 í ljósi aðstæðna í Ráðhúsi Húnaþings vestra.“

1.Byggðarráð - 1289

Málsnúmer 2609006FVakta málsnúmer

Fundargerð 1289. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 407. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Örn Arnarson formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1289 Byggðarráð leggur áherslu á að gengið verði út frá óbreyttum gjaldskrám frá árinu 2026. Nýr gjaldaliður verður þó í gjaldskrá Hammstangahafnar er snýr að heimild til gjaldtöku vegna geymslu efnis/vara á hafnarkanti til að koma í veg fyrir langtímastöðu á kantinum.
  • Byggðarráð - 1289 Magnús Vignir Eðvaldsson lagði fram eftirfarandi tillögu:

    „Ungmennum á aldrinum 16-18 ára er jafnframt heimilt að nýta frístundastyrk til greiðslu þátttökugjalda vegna skipulagðs íþrótta-, félags- og tómstundastarfs utan Húnaþings vestra, enda uppfylli starfsemin markmið þessara reglna og greiðsla sé staðfest með fullnægjandi gögnum. Upphæð frístundakorts hækki jafnframt í kr. 27.000.“

    Formaður byggðarráðs lagði fram eftirfarandi breytingartillögu:

    „Ungmennum á aldrinum 16-18 ára er jafnframt heimilt að nýta frístundastyrk til greiðslu þátttökugjalda vegna skipulagðs íþrótta-, félags- og tómstundastarfs utan Húnaþings vestra, enda uppfylli starfsemin markmið þessara reglna og greiðsla sé staðfest með fullnægjandi gögnum. Fjárhæðin verði óbreytt á milli ára, eða kr. 25.000.“

    Tillaga formanns byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Magnús Vignir, Eygló Hrund og Viktor Ingi sátu hjá.

  • Byggðarráð - 1289 Lagðar voru fram til kynningar starfsáætlanir forstöðumanna fyrir árið 2026.

    Byggðarráð þakkar forstöðumönnum fyrir vandaðar og metnaðarfullar starfsáætlanir fyrir komandi ár.
  • Byggðarráð - 1289 Farið var yfir umsóknir um styrki til félags-, menningar- og atvinnumála.

2.Byggðarráð - 1290

Málsnúmer 2609002FVakta málsnúmer

Fundargerð 1290. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 407. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Nína Axelsdóttir varaformaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1290 Fært í trúnaðarbók.
  • Byggðarráð - 1290 Byggðarráð samþykkir samhljóða niðurfellingu á leigu íþróttamiðstöðvar vegna bocciamóts 31. október nk. svo fremi sem mótið sé haldið innan opnunartíma íþróttamiðstöðvar.
  • Byggðarráð - 1290 Byggðarráð samþykkir með 2 atkvæðum að vísa erindinu til fræðsluráðs til umfjöllunar. Bókun fundar Magnús Vignir Eðvaldsson og Viktor Ingi Jónsson véku af fundi kl. 15:05.

    Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum.

    Magnús Vignir og Viktor Ingi komu til fundar að nýju kl. 15:07.
  • Byggðarráð - 1290 Í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar á 404. fundi sem haldinn var þann 11. júní 2026 verða fulltrúar Húnaþings vestra á þinginu eftirtalin: Magnús Magnússon, Nína Axelsdóttir, Viktor Ingi Jónsson og Magnús Vignir Eðvaldsson. Til vara: Örn Arnarson, Dagrún Kristinsdóttir, Eygló Hrund Guðmundsdóttir og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir.
  • Byggðarráð - 1290 Byggðarráð samþykkir samhljóða að afnot af húsnæði í eigu sveitarfélagsins verði gjaldfrjáls fyrir viðburði á barnamenningarhátíðinni Skúnaskrall sem haldin verður í október nk. Afnot skulu skipulögð í samráði við forstöðumann viðkomandi byggingar og ekki fela í sér rask á starfsemi eða viðbótarkostnað.
  • Byggðarráð - 1290 Eftirfarandi spurningar eru settar fram í erindinu.

    Mun Húnaþing vestra endurskoða fyrirhugaðar eða þegar samþykktar gjaldskrárhækkanir og leita leiða til að lækka gjöld sem hafa mest áhrif á barnafjölskyldur og viðkvæma hópa?
    Svar: Í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027 er gert ráð fyrir að gjaldskrár standi í stað milli ára. Með því móti er sveitarfélagið að koma til móts við alla íbúa og leggja sitt á vogarskálarnar til að skapa stöðugleika í landinu. Því er ekki þörf á endurskoðun fyrirhugaðra gjaldskrárhækkana, það stóð aldrei til að hækka gjaldskrár.

    Hvaða aðgerðir hyggst Húnaþing vestra ráðast í til að tryggja nægilegt framboð lóða og hraðari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis?
    Svar: Nú þegar er nægilegt framboð lóða í samræmi við þá þörf sem fram kemur í húsnæðisáætlun sveitarfélagsins. Sveitarfélagið hefur jafnframt stuðlað að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis með mjög myndarlegum hætti undanfarin ár, nú síðast með byggingu 10 íbúða húss sem tekið var í notkun í sumar með stofnframlagi og samstarfi við leigufélagið Brák. Sveitarfélagið var þriðja sveitarfélagið á landinu sem skilgreindi framlag sitt til aukins framboðs íbúðarhúsnæðis innan rammasamnings milli ríkis og sveitarfélaga árið 2024.

    Hvernig hyggst Húnaþing vestra leggja sitt af mörkum til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla?
    Svar: Í Húnaþingi vestra komast börn inn á leikskóla við 12 mánaða aldur. Engir biðlistar eru eftir leikskólaplássum. Sveitarfélagið hefur því þegar brúað bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og það fyrir löngu.

    Hvaða aðrar aðgerðir telur Húnaþing vestra mögulegar til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila og styðja við markmið kjarasamninganna um verðstöðugleika?
    Framlagning fjárlaga nú nýverið voru mikil vonbrigði ef litið er til stöðugleika í þjóðfélaginu. Að mati byggðarráðs væri mikilvægasta aðgerðin til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila og stuðla að verðstöðugleika að hið opinbera drægi til baka fyrirhugaðar skattahækkanir sem munu bitna verst á heimilunum í landinu og stuðla að áframhaldandi hárri verðbólgu og háu vaxtastigi.


  • Byggðarráð - 1290 Í erindinu óskar sambandið eftir skriflegu svari við því hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika og sjá til þess að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.

    Í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027 er gert ráð fyrir að gjaldskrár standi í stað milli ára. Með því móti er sveitarfélagið að koma til móts við alla íbúa og leggja sitt á vogarskálarnar til að skapa stöðugleika í landinu. Því er stefnt að því að gera gott betur en það sem Starfsgreinasambandið skorar á sveitarfélagið að gera í erindinu. Húnaþing vestra tekur að sjálfsögðu þátt í þjóðarsátt í framhaldinu ef til þess kemur að almenn sátt náist um það. Slík sátt kallar á samkomulag allra, atvinnulífs og opinberra aðila. Því var framlagning fjárlaga nú nýverið mikil vonbrigði með þeim skattahækkunum sem þar eru boðaðar og ekki eru til þess fallnar að skapa þjóðarsátt. Sveitarfélagið skorar jafnframt á einkaaðila að halda gjaldskrárhækkunum sínum í lágmarki því ekki gengur til lengdar að sveitarfélagið láti sínar gjaldskrár standa í stað eða haldi hækkunum í lágmarki ef sú þjónusta sem það kaupir af öðrum hækkar stöðugt.
  • Byggðarráð - 1290 Byggðarráð þakkar Sambandi íslenskra sveitarfélaga fyrirspurnina og upplýsir að þegar hefur verið skipað í þau ráð sem um ræðir.
  • Byggðarráð - 1290 Tvö tilboð bárust,

    FK verk - heildarverð kr. 4.010.000.
    Ingibjörn Pálmar Gunnarsson - heildarverð kr. 3.792.000.
    Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr. 3.120.000.

    Lægstbjóðandi hefur sagt sig frá tilboðinu.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga að tilboði FK verks. Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi þar um í samræmi við verðfyrirspurnarskilmála og niðurstöðu verðfyrirspurnarinnar.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1290 Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.
  • Byggðarráð - 1290
  • Byggðarráð - 1290
  • Byggðarráð - 1290
  • Byggðarráð - 1290
  • Byggðarráð - 1290

3.Byggðarráð - 1291

Málsnúmer 2609009FVakta málsnúmer

Fundargerð 1291. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 407. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Nína Axelsdóttir varaformaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1291 Lögð eru fram drög að svörum Húnaþings vestra við erindi og spurningakönnun innviðaráðuneytisins í tengslum við vinnu við gerð grænbókar um stöðu, áskoranir og tækifæri sveitarstjórnarstigsins.

    Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og leggur sérstaka áherslu á þau sjónarmið sem fram koma í svörunum um nauðsyn þess að einfalda regluverk, gæta meðalhófs við stjórnsýslukröfur á fámennari sveitarfélög og tryggja að fullnægjandi fjármögnun fylgi lögbundnum verkefnum og jöfnunaraðgerðum.

    Sveitarstjóra er falið að senda svörin til innviðaráðuneytisins.
  • Byggðarráð - 1291 Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.
  • Byggðarráð - 1291 Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs vegna beiðnar Fanneyjar Daggar Indriðadóttur um breytingu á launalausu leyfi sem veitt var á 1285. fundi byggðarráðs sem haldinn var þann 10. ágúst 2026. Í minnisblaðinu kemur fram að Fanney óskar eftir að launalaust leyfi hennar verði fellt niður frá og með 1. nóvember 2026 og hún taki þá aftur til starfa. Sviðsstjóri gerir ekki athugasemdir við beiðnina.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að launalaust leyfi Fanneyjar Daggar Indriðadóttur verði fellt niður frá og með 1. nóvember 2026 og að hún taki aftur til starfa frá þeim tíma.
  • Byggðarráð - 1291 Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður fulltrúi Húnaþings vestra á ársfundinum og mun fara með atkvæðisrétt sveitarfélagsins.
  • Byggðarráð - 1291 Byggðarráð Húnaþings vestra veitti umsögn um frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 505. mál á 157. löggjafarþingi, þann 23. mars 2026. Nú hefur frumvarpið verið lagt fram að nýju. Byggðarráð fagnar áframhaldandi endurskoðun sveitarstjórnarlaga með það að markmiði að skýra lagaumhverfi og efla stjórnsýslu sveitarfélaga. Ráðið telur þó að eftirfarandi athugasemdir úr fyrri umsögn þess eigi enn við.

    15. gr. - staðsetning sveitarstjórnarfunda
    Samkvæmt frumvarpinu skal halda fundi sveitarstjórnar innan staðarmarka sveitarfélags nema óviðráðanlegar aðstæður geri það ómögulegt. Byggðarráð ítrekar að upp geta komið málefnalegar ástæður til að halda fund utan sveitarfélags án þess að um óviðráðanlegar aðstæður sé að ræða. Ráðið leggur til að sveitarstjórn fái svigrúm til að ákveða slíkan fundarstað komi upp sérstakar aðstæður, enda sé tryggt að fundurinn sé auglýstur og að reglum um aðgang almennings að opnum fundum sé fylgt.

    30. gr. - aðgangur kjörinna fulltrúa að starfsstöðvum
    Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að kjörnir fulltrúar geti áfram óskað eftir að kynna sér starfsstöðvar sveitarfélagsins í samráði við stjórnendur. Sú regla kemur hins vegar ekki fram í lagatextanum sjálfum. Byggðarráð ítrekar tillögu sína um að hún verði tekin upp í 30. gr. Með því verði bæði réttur kjörinna fulltrúa og nauðsynlegt samráð við stjórnendur skýr.

    72. og 74. gr. - fjárhagsleg viðmið og áhrifamat
    Byggðarráð fagnar því að viðmið um heildarskuldir og skuldbindingar A-hluta sé áfram 130% af heildartekjum. Ráðið ítrekar jafnframt mikilvægi þess að reglur um mat á langtímaáhrifum fjárhagslegra ákvarðana taki mið af ólíkum aðstæðum sveitarfélaga.

    Samkvæmt 74. gr. þarf að meta fjárhagsleg áhrif ákvörðunar sem nemur hærri fjárhæð en 10% af heildartekjum sveitarfélagsins á komandi fjárhagsári. Nemi ákvörðunin 20% eða meira skal fá sérfróðan aðila sem ekki er tengdur sveitarfélaginu til að gera matið. Byggðarráð telur mikilvægt að nánari reglur og undanþágur samkvæmt ákvæðinu tryggi að framkvæmd þess verði hófleg og raunhæf fyrir sveitarfélög af ólíkri stærð. Áhrifamat þarf jafnframt að geta tekið tillit til þess þegar fjárfesting er nauðsynleg til að sinna lögbundnu verkefni eða er líkleg til að skila auknum tekjum til lengri tíma.




    110. gr. - álag á raunkostnað við samstarf sveitarfélaga
    Byggðarráð fagnar því að skýrar sé kveðið á um samninga þegar eitt sveitarfélag tekur að sér verkefni annars. Ráðið ítrekar þó athugasemd sína við heimild þjónustuveitandi sveitarfélags til að bæta álagi við raunkostnað án þess að skýr takmörk séu sett í lagagreininni. Í greinargerð er útskýrt hvaða óbeini kostnaður og áhætta geti réttlætt álagið, en sú afmörkun kemur ekki fram í ákvæðinu sjálfu.

    Byggðarráð leggur til að í 110. gr. verði tilgreint hvaða kostnaðarliðir geti fallið undir álagið og að sett verði skýr viðmið eða hámark um fjárhæð þess. Það myndi auðvelda sveitarfélögum að gera gagnsæja samninga og draga úr ágreiningi um kostnaðarskiptingu.

    Að öðru leyti vísar byggðarráð til fyrri umsagnar sinnar um málið. Ráðið áskilur sér rétt til að koma frekari sjónarmiðum á framfæri við meðferð frumvarpsins og er tilbúið til samtals við umhverfis- og samgöngunefnd.
  • Byggðarráð - 1291

4.Byggðarráð - 1292

Málsnúmer 2610001FVakta málsnúmer

Fundargerð 1292. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 407. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Örn Arnarson formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1292 Farið yfir tillögu sviðsstjóra að fjárfestingaáætlun áranna 2027-2030.

5.Byggðarráð - 1293

Málsnúmer 2609012FVakta málsnúmer

Fundargerð 1293. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 407. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Örn Arnarson formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1293 Ingimar Ingimarsson, sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs kom til fundar og fór yfir stöðu helstu framkvæmda. Byggðarráð þakkar Ingimari greinargóða yfirferð.
  • Byggðarráð - 1293 Eignasjóður, sparkvöllur við grunnskóla kr. 7.800.000.

    Hækkun eignfærðrar fjárfestingar, samtals kr. 7.800.000.

    Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

    Gervigras á sparkvelli við grunnskólann er orðið mjög úr sér gengið og þörf er á endurnýjun þess til að tryggja áfram örugga og fullnægjandi notkun vallarins. Framkvæmdin var á langtímaáætlun sveitarfélagsins árið 2027, þar sem gert var ráð fyrir 9,5 m.kr. kostnaði. Lagt er til að framkvæmdinni verði flýtt og ráðist í hana nú, en áætlaður kostnaður er 7,8 m.kr.

    Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða honum.
  • Byggðarráð - 1293 Byggðarráð tekur vel í erindið enda um að ræða mikilvæga þjónustu við börn og ungmenni í landshlutanum. Samþykkt samhljóða að fela sveitarstjóra að kanna með beina kostnaðarþátttöku Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra þar sem um er að ræða verkefni sem nýtist ungmennum í landshlutanum öllum.
  • Byggðarráð - 1293
  • Byggðarráð - 1293

6.Byggðarráð - 1294

Málsnúmer 2610004FVakta málsnúmer

Fundargerð 1294. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 407. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Örn Arnarson formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1294 Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa beiðninni til fjárhagsáætlunargerðar 2027.
  • Byggðarráð - 1294 Byggðarráð samþykkir framlögð drög að persónuverndarstefnu Húnaþings vestra 2027 samhljóða og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
  • Byggðarráð - 1294 Stofnfundur Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga fór fram þann 7. október sl. Byggðarráð samþykkir samhljóða stofnaðild Húnaþings vestra að samtökunum. Ráðið fagnar jafnframt stofnun samtakanna enda er landbúnaður stærsta atvinnugreinin í sveitarfélaginu og mikilvægt að um hana sé staðinn öflugur vörður. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1294 Um er að ræða 5 verkefni sem öll lúta að bættri umgjörð um börn og ungmenni í landshlutanum. Þátttaka sveitarfélagsins snýr að vinnuframlagi starfsmanna sveitarfélagsins við vinnslu verkefnanna og/eða húsnæði undir viðburði.

    Byggðarráð lýsir samhljóða yfir stuðningi við verkefnin í samræmi við framangreindar forsendur.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1294 Byggðarráð samþykkir samhljóða þátttöku Húnaþings vestra í ferðinni með fyrirvara um ásættanlegan kostnað og felur sveitarstjóra að kalla eftir áhuga á þátttöku meðal sveitarstjórnarmanna.
  • Byggðarráð - 1294

7.Skipulagsráð - 389

Málsnúmer 2608005FVakta málsnúmer

Fundargerð 389. fundar skipulagsráðs lögð fram til afgreiðslu á 407. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Nína Axelsdóttir varaformaður skipulagsráðs kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulagsráð - 389 Umsagnir sem bárust við kynningu skipulags- og matslýsingar vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 fyrir tengivirki í landi Reykja við Laugarbakka.
    Umsagnirnar fela meðal annars í sér ábendingar sem tekið verður mið af áframhaldandi vinnslu tillögunnar og umhverfismats hennar.

    Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að framkomnar umsagnir verði lagðar til grundvallar um áframhaldandi skipulagsvinnu og að unnið verði áfram tillaga að breytingu aðalskipulags ásamt umhverfismati og gerð deiliskipulags fyrir svæðið, í samræmi við framlagða skipulags- og matslýsingu.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulagsráð - 389 Skipulagsráð hefur farið yfir framkomnar umsagnir og athugasemdir og tekur undir að við áframhaldandi vinnslu málsins verði tekið mið af þeim ábendingum sem þar koma fram. Ráðið felur skipulagsfulltrúa að láta uppfæra og aðlaga skipulagsgögn í samræmi við innsendar umsagnir, einkum er varðar náttúrufar og votlendi, vatnafar og mengunarvarnir, umferðaröryggi, veitur og mótvægisaðgerðir. Einnig skal afmörkun skipulagssvæðisins með tilliti til landamerkja Barðs og Melstaðar og tryggja að skipulagið taki mið af landamerkjum jarðanna.

    Að lokinni úrvinnslu og uppfærslu skipulagstillögunnar verði málið lagt að nýju fyrir skipulagsráð til umfjöllunar og afgreiðslu.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 7.3 2604050 DSK-Skrúðvangur
    Skipulagsráð - 389 Skipulagsráð hefur farið yfir framkomnar umsagnir vegna auglýstrar tillögu að deiliskipulagi Skrúðvangs á Laugarbakka. Ráðið tekur mið af þeim ábendingum sem fram koma í umsögnum og tekur tillit til þeirra við endanlega útfærslu skipulagsgagna.

    Skipulagsráð leggur því til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagstillögu fyrir Skrúðvang á Laugarbakka og felur skipulagsfulltrúa að annast áframhaldandi málsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulagsráð - 389 Skipulagsráð hefur farið yfir þær umsagnir sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar fyrir Nestún/lífskjarnasvæði. Ráðið tekur umsagnirnar til greina og felur skipulagsfulltrúa áframhaldandi vinnslu deiliskipulagstillögunnar og tekið verði mið af framkomnum umsögnun/ábendingum. Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 7.5 2607002 Dsk-Borðeyri
    Skipulagsráð - 389 Skipulagsráð hefur farið yfir þær umsagnir sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar fyrir Borðeyri. Ráðið tekur umsagnirnar til greina og felur skipulagsfulltrúa áframhaldandi vinnslu deiliskipulagstillögunnar og tekið verði mið af framkomnum umsögnun/ábendingum. Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulagsráð - 389 Skipulagsráð hefur yfirfarið fyrirliggjandi gögn Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar endurbyggingar Vatnsnesvegar (711) á 10,2 km kafla milli Síðuvegar (716) og Hringvegar (1).

    Ráðið telur að með fullnægjandi hætti sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, helstu umhverfisáhrifum hennar og fyrirhuguðum mótvægisaðgerðum. Skipulagsráð leggur því til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við framkvæmdina, enda verði við áframhaldandi hönnun, undirbúning og leyfisveitingar tekið fullt tillit til áhrifa á votlendi, vatnshlot, fornleifar, efnistöku og aðra viðeigandi umhverfisþætti.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulagsráð - 389 Skipulagsráð hefur farið yfir tillögu að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037 og leggur til við sveitarstjórn að gerð verði athugasemd við misræmi í afmörkun sveitarfélagamarka Húnaþings vestra og Húnabyggðar í fyrirliggjandi skipulagsgögnum. Ráðið leggur til að Húnabyggð, í samráði við ráðgjafa Húnaþings vestra, fari yfir og samræmi sveitarfélagamörkin áður en skipulagið verður staðfest.

    Jafnframt verði við áframhaldandi vinnslu skipulagsins tryggt samræmi milli sveitarfélaganna um sameiginlega innviði og skipulagsforsendur sem ná yfir sveitarfélagamörk, einkum hvað varðar samgöngur, raforkuflutningskerfi, tengivirki og aðra þá þætti þar sem hagsmunir og innviðir sveitarfélaganna tengjast.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulagsráð - 389 Málið hefur verið kynnt umsagnaraðilum og liggja nú fyrir umsagnir þeirra.

    Skipulagsráð tekur undir framkomnar umsagnir og leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt samkvæmt framlögðum gögnum með eftirfarandi skilyrðum og ábendingum umsagnaraðila.
    Framkvæmdir fari fram utan varptíma fugla og rask verði eins takmarkað og kostur er og vandað verði til frágangs.
    Jafnframt skal fornleifaskráningu lokið og endanleg afstaða Minjastofnunar Íslands liggja fyrir áður en framkvæmdir hefjast.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulagsráð - 389 Skipulagsráð tekur málið til umfjöllunar. Þar sem ekki liggur fyrir skilgreind lóð á umræddu svæði í skipulagi er ekki unnt að úthluta lóð að svo stöddu.

    Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hafin verði vinna við gerð deiliskipulagstillögu fyrir svæðið milli Brekkugötu, Lækjargötu og Höfðabrautar, þar sem m.a. verði tekin afstaða til lóðaskiptingar, aðkomu og annarra skipulagsforsendna. Við vinnuna verði haft samráð við lóðarhafa.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 4

Málsnúmer 2609011FVakta málsnúmer

Fundargerð 4. fundar umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs lögð fram til afgreiðslu á 407. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Sigurður Líndal Þórisson oddviti kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 4 Ráðið þakkar kynninguna.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 4 Ráðið þakkar kynninguna og felur verkefnastjóra umhverfismála að leggja fyrir ráðið tillögur að frekari þróun á meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 4 Umhverfis, veitu-, og framkvæmdaráð leggur til að gerð verði fýsileikaúttekt á möguleikum til stækkunar á leikskólanum ásamt því taka út núverandi húsnæði.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 4 Ráðið þakkar yfirferðina.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 4 Ráðið þakkar yfirferðina.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 4 Skýrsla sérfræðinga í loftgæðamælingum sýnir fram á alvarlegt ástand loftgæða í kjallara og fyrstu hæð ráðhússins. Loftgæði á efri hæð virðast innan marka en þarfnast þó skoðunar. Umhverfis, veitu-, og framkvæmdaráð leggur til að starfsemi ráðhússins verði flutt tímabundið úr húsinu yfir í Félagsheimilið Hvammstanga. Starfsemin verði þar til húsa á meðan beðið er eftir niðurstöðu úr frekari rannsóknum og brugðist hefur verið við þeim ábendingum og tillögum sem sérfræðingar mæla með.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 4 Umhverfis, veitu-, og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að farið verði í þær framkvæmdir sem eru í forgangi m.t.t. öryggissjónarmiða. Bókun fundar Afgreiðsla umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Fræðsluráð - 265

Málsnúmer 2609004FVakta málsnúmer

Fundargerð 265. fundar fræðsluráðs lögð fram til afgreiðslu á 407. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Sigurður Líndal Þórisson oddviti kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

10.Félagsmálaráð - 273

Málsnúmer 2609008FVakta málsnúmer

Fundargerð 273. fundar félagsmálaráðs lögð fram til afgreiðslu á 407. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Sigurður Líndal Þórisson oddviti kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Félagsmálaráð - 273 Lögð fram samantekt um afstöðu nemenda til skipulags í samfélagsmiðstöð sem félagsmálaráð vísar til hönnuðar. Félagsmálaráð óskar eftir fullbúnum teikningum af eldhúsi fyrir næsta fund þar sem búið er að eiga samráð við hagaðila um útfærslur.
    Félagsmálaráð leggur áherslu á að fjármunir sem ætlaðir eru til endurbóta á þessu ári í félagsheimilinu verði nýttir fyrir áramót, m.a. í hönnun og kaup á búnaði ef ekki næst að fara í framkvæmdir.
  • Félagsmálaráð - 273
  • Félagsmálaráð - 273 Lagðar fram tilnefningar til samfélagsviðurkenninga. Félagsmálaráð felur sviðsstjóra að koma tillögu sinni til sveitarstjórnar. Bókun fundar Afgreiðsla félagsmálaráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Félagsmálaráð - 273 Félagsmálaráð hefur að undanförnu fjallað um fyrirkomulag viðburðahalds í Félagsheimilinu á Hvammstanga með hliðsjón af rekstrarleyfi hússins í flokki III og þeim reglum sem gilda um sölu og veitingu áfengis á viðburðum.

    Ráðið hefur sérstaklega skoðað stöðu einkaaðila sem taka félagsheimilið á leigu og hyggjast selja áfengar veitingar á viðburðum. Samkvæmt ákvörðun sveitarfélagsins um fyrirkomulag rekstrarleyfis Félagsheimilisins verður sveitarfélagið ekki milligönguaðili um kaup á áfengi sem veitt eða selt er á slíkum viðburðum. Við þær aðstæður getur því komið til þess að viðburðarhaldari þurfi að sækja um tækifærisleyfi vegna viðburðarins. Í tengslum við slíkt leyfi getur jafnframt komið til greiðslu löggæslukostnaðar samkvæmt 34. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, að uppfylltum skilyrðum ákvæðisins.

    Félagsmálaráð hefur farið yfir mögulegar leiðir til að haga fyrirkomulaginu með öðrum hætti, með það að markmiði að auðvelda viðburðarhald í félagsheimilinu og eftir föngum koma í veg fyrir að viðburðarhaldarar verði fyrir auknum kostnaði vegna löggæslu. Að mati ráðsins, að lokinni þeirri skoðun, hefur ekki fundist útfærsla sem samræmist gildandi laga- og reglugerðarumhverfi og þeirri ábyrgð sem fylgir rekstrarleyfi í félagsheimilinu, og er jafnframt ákjósanleg fyrir starfsemi þess.

    Ráðið telur því ekki forsendur að svo stöddu til að breyta núverandi fyrirkomulagi en leggur áherslu á að áfram verði fylgst með mögulegum breytingum á laga- og reglugerðarumhverfi sem gætu skapað svigrúm til annarrar útfærslu.
    Bókun fundar Örn Arnarson vék af fundi kl. 15:49.

    Afgreiðsla félagsmálaráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

    Örn Arnarson kom til fundar að nýju kl. 15:54.
  • Félagsmálaráð - 273 Sviðsstjóri upplýsti um breytingar á reglunum sem nauðsynlegt er að fara í. Sviðsstjóra falið að undirbúa breytingartillögur.
  • Félagsmálaráð - 273

11.Viðauki 12 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2610007Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna endurnýjunar gervigrass á sparkvelli á skólalóð Grunnskóla Húnaþings vestra.
„Eignasjóður, sparkvöllur við grunnskóla kr. 7.800.000.

Hækkun eignfærðrar fjárfestingar, samtals kr. 7.800.000.

Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Gervigras á sparkvelli við grunnskólann er orðið mjög úr sér gengið og þörf er á endurnýjun þess til að tryggja áfram örugga og fullnægjandi notkun vallarins. Framkvæmdin var á langtímaáætlun sveitarfélagsins árið 2027, þar sem gert var ráð fyrir 9,5 m.kr. kostnaði. Lagt er til að framkvæmdinni verði flýtt og ráðist í hana nú, en áætlaður kostnaður er 7,8 m.kr.

Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða honum.

12.Persónuverndarstefna Húnaþings vestra

Málsnúmer 2610020Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurskoðaðri persónuverndarstefnu Húnaþings vestra.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir fyrirliggjandi persónuverndarstefnu Húnaþings vestra. Sveitarstjórn felur jafnframt sveitarstjóra að birta stefnuna á heimasíðu sveitarfélagsins og kynna fyrir starfsmönnum sveitarfélagsins.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

13.Útsendingar sveitarstjórnarfunda

Málsnúmer 2606054Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað sveitarstjóra um hugsanlegar útsendingar frá sveitarstjórnarfundum.
Oddviti leggur fram eftirfarandi tillögu:

„Í ljósi þeirrar óvissu sem upp er komin vegna myglu sem greinst hefur í Ráðhúsinu, er lagt til að málinu verði frestað og það tekið upp að nýju þegar framtíðar fundaraðstaða sveitarstjórnar verður tekin í notkun.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

14.Aukafundur sveitarstjórnar í október

Málsnúmer 2610040Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að aukafundi sveitarstjórnar þann 29. október nk., vegna fyrri umræðu fjárhagsáætlunar 2027, ásamt þriggja ára áætlun.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir að halda aukafund sveitarstjórnar þann 29. október nk., þar sem fjárhagsáætlun ársins 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030 fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki verður lögð fram til fyrri umræðu.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

15.Skýrsla sveitarstjóra

Málsnúmer 2311018Vakta málsnúmer

Unnur Valborg Hilmarsdóttir fór yfir helstu verkefni sín frá síðasta fundi sveitarstjórnar.
Skýrslan var flutt munnlega og til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:34.

Var efnið á síðunni hjálplegt?