Tillaga um undirbúning útsendinga frá fundum sveitarstjórnar Húnaþings vestra

Málsnúmer 2606054

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 405. fundur - 18.06.2026

N-listinn óskaði eftir að gera fundarhlé kl. 15:37. Samþykkt samhljóða.

Fundurinn hófst að nýju kl. 15:52.


Magnús Vignir Eðvaldsson lagði fram eftirfarandi tillögu:

„Sveitarstjórnarfulltrúar N-listans leggja til að sveitarstjórn Húnaþings vestra feli byggðarráði að skoða möguleika þess að hefja útsendingar frá fundum sveitarstjórnar og leggja fyrir sveitarstjórn tillögu að hugsanlegu fyrirkomulagi, kostnaðarmati og nauðsynlegum verklagsreglum vegna verkefnisins á fyrsta reglulega sveitarstjórnarfundi eftir sumarleyfi árið 2026.

Markmið tillögunnar er að auka gagnsæi í stjórnsýslu sveitarfélagsins og bæta aðgengi íbúa að störfum sveitarstjórnar. Með útsendingum gefst íbúum kostur á að fylgjast með sveitarstjórnarfundum og ákvarðanatöku kjörinna fulltrúa óháð búsetu, vinnutíma eða öðrum aðstæðum sem kunna að hindra fundarsókn.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.




Var efnið á síðunni hjálplegt?