Byggðarráð

1293. fundur 05. október 2026 kl. 14:00 - 14:58 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Ingimar Ingimarsson kom til fundar kl. 14:01.

1.Sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs kemur til fundar

Málsnúmer 2502042Vakta málsnúmer

Ingimar Ingimarsson, sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs kom til fundar og fór yfir stöðu helstu framkvæmda. Byggðarráð þakkar Ingimari greinargóða yfirferð.
Ingimar Ingimarsson vék af fundi kl. 14:42.

2.Viðauki 12 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2610007Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna endurnýjunar gervigrass á sparkvelli á skólalóð Grunnskóla Húnaþings vestra.
Eignasjóður, sparkvöllur við grunnskóla kr. 7.800.000.

Hækkun eignfærðrar fjárfestingar, samtals kr. 7.800.000.

Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

Gervigras á sparkvelli við grunnskólann er orðið mjög úr sér gengið og þörf er á endurnýjun þess til að tryggja áfram örugga og fullnægjandi notkun vallarins. Framkvæmdin var á langtímaáætlun sveitarfélagsins árið 2027, þar sem gert var ráð fyrir 9,5 m.kr. kostnaði. Lagt er til að framkvæmdinni verði flýtt og ráðist í hana nú, en áætlaður kostnaður er 7,8 m.kr.

Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða honum.

3.Beiðni um stuðning

Málsnúmer 2610008Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, dags. 2. október 2026, um stuðning vegna mögulegrar viðveru Bergsins headspace í landshlutanum.
Byggðarráð tekur vel í erindið enda um að ræða mikilvæga þjónustu við börn og ungmenni í landshlutanum. Samþykkt samhljóða að fela sveitarstjóra að kanna með beina kostnaðarþátttöku Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra þar sem um er að ræða verkefni sem nýtist ungmennum í landshlutanum öllum.

4.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2602001Vakta málsnúmer

Fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11. september 2026 lögð fram til kynningar.

5.Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2026

Málsnúmer 2608080Vakta málsnúmer

Fundargerð 144. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra frá 22. september sl. lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:58.

Var efnið á síðunni hjálplegt?