Viðauki 12 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2610007

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1293. fundur - 05.10.2026

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna endurnýjunar gervigrass á sparkvelli á skólalóð Grunnskóla Húnaþings vestra.
Eignasjóður, sparkvöllur við grunnskóla kr. 7.800.000.

Hækkun eignfærðrar fjárfestingar, samtals kr. 7.800.000.

Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

Gervigras á sparkvelli við grunnskólann er orðið mjög úr sér gengið og þörf er á endurnýjun þess til að tryggja áfram örugga og fullnægjandi notkun vallarins. Framkvæmdin var á langtímaáætlun sveitarfélagsins árið 2027, þar sem gert var ráð fyrir 9,5 m.kr. kostnaði. Lagt er til að framkvæmdinni verði flýtt og ráðist í hana nú, en áætlaður kostnaður er 7,8 m.kr.

Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða honum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?