Fræðsluráð

265. fundur 17. september 2026 kl. 10:00 - 12:15 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Dagrún Kristinsdóttir formaður
  • Ragnar Bragi Ægisson aðalmaður
  • Kolfinna Rún Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Andri Steinn Guðjónsson aðalmaður
  • Birkir Snær Gunnlaugsson varamaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá

1.Starfsáætlun fræðsluráðs

Málsnúmer 2608021Vakta málsnúmer

Starfsáætlun fræðsluráðs samþykkt.

2.Ársskýrsla Farskólans 2025

Málsnúmer 2606091Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

3.Reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum.

Málsnúmer 2608079Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

4.Eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra vegna grunnskóla.

Málsnúmer 2503029Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.
Guðný Kristín Guðnadóttir, Þorsteinn Þóruson og Rannvá Björk Þorleifsdóttir mættu til fundar kl. 10:25

5.Reglur um leikskólaþjónustu

Málsnúmer 2502066Vakta málsnúmer

Farið yfir drög að reglum um leikskólaþjónustu. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs er falið að vinna áfram að reglunum.
Þorsteinn Þóruson vék af fundi kl. 11:05

6.Opnunartími leikskóla og grunnskóla

Málsnúmer 2411049Vakta málsnúmer

Fræðsluráð leggur til að opnunartími leikskóla verði óskertur, þ.e. frá kl. 7:45 til 16:15 og að mönnun skólans sé í samræmi við það. Ákveðið að fresta umræðu um opnunartíma grunnskóla og frístundar.

7.Rekstrarúttekt leikskóla

Málsnúmer 2411036Vakta málsnúmer

Sviðsstjóra falið að kostnaðagreina tillögur um mönnunarlíkan fyrir næsta fund.

8.Skóladagatal leikskóla 2026-2027

Málsnúmer 2601071Vakta málsnúmer

Leikskólastjóra falið að gera könnun meðal foreldra um viðhorf þeirra til lokunar fyrsta mánudag í mánuði gagnvart öðrum kostum til funda og faglegs starfs.
Guðný og Rannvá véku af fundi kl. 11:51

Fundi slitið - kl. 12:15.

Var efnið á síðunni hjálplegt?