Skóladagatal leikskóla 2026-2027

Málsnúmer 2601071

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 259. fundur - 29.01.2026

Guðný Kristín Guðnadóttir og Anna Berner mættu til fundar kl. 15:00
Skólastjórnendur leikskóla kynntu drög að skóladagatali 2026-2027 og greindu frá vinnu í gæðaviðmiðum í skólanum út frá skólanámskrá.
Guðný Kristín og Anna véku af fundi kl. 15:26

Fræðsluráð - 260. fundur - 26.02.2026

Drög lögð fram til kynningar.
Fræðsluráð samþykkir drögin og felur skólastjóra leikskóla að auglýsa drögin til athugasemda fyrir næsta fund.

Fræðsluráð - 261. fundur - 26.03.2026

Áður á dagskrá 260. fundar fræðsluráðs.
Engar athugasemdir hafa borist. Fræðsluráð samþykkir skóladagatal leikskólans Ásgarðs fyrir skólaárið 2026-2027.

Fræðsluráð - 264. fundur - 27.08.2026

Fræðsluráð samþykkir óverulega breytingu á skóladagatali leikskóla.

Fræðsluráð - 265. fundur - 17.09.2026

Leikskólastjóra falið að gera könnun meðal foreldra um viðhorf þeirra til lokunar fyrsta mánudag í mánuði gagnvart öðrum kostum til funda og faglegs starfs.
Guðný og Rannvá véku af fundi kl. 11:51

Fræðsluráð - 266. fundur - 22.10.2026

Guðný Kristín Guðnadóttir og Anna Berner mættu til fundar kl. 10:20
Skólastjórnendur lögðu fyrir niðurstöður skoðanakönnunar meðal foreldra í leikskóla um starfsdaga í upphafi fyrsta mánudags í mánuði. 51 foreldri svaraði og skiptar skoðanir eru um fyrirkomulagið. Skólastjórnendum er falið að kynna niðustöðurnar fyrir starfsfólki leikskólans og fá fram afstöðu þeirra. Sviðsstjóra og skólastjóra er falið að koma með tillögur um fyrirkomulag á næsta fund fræðsluráðs.
Var efnið á síðunni hjálplegt?