Fræðsluráð

266. fundur 22. október 2026 kl. 09:00 - 12:18 í Félagsheimilinu Hvammstanga
Nefndarmenn
  • Dagrún Kristinsdóttir formaður
  • Jóhanna Maj Júlíusdóttir varaformaður
  • Ragnar Bragi Ægisson aðalmaður
  • Kolfinna Rún Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Andri Steinn Guðjónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá

1.Heimsókn fræðsluráðs

Málsnúmer 2608020Vakta málsnúmer

Heimsókn í leikskólann Ásgarð
Leikskólastjórnendum er þakkað fyrir góða kynningu á starfi og húsnæði skólans.

2.Skóladagatal grunn- og tónlistarskóla 2026-2027

Málsnúmer 2602071Vakta málsnúmer

Fræðsluráð samþykkir breytt skóladagatal. Umræður voru um mikilvægi upplýsinga til fræðsluráðs ef breyta þarf skóladagatali með stuttum fyrirvara og að verklag vegna þess sé endurskoðað.
Guðný Kristín Guðnadóttir og Anna Berner mættu til fundar kl. 10:20

3.Skóladagatal leikskóla 2026-2027

Málsnúmer 2601071Vakta málsnúmer

Skólastjórnendur lögðu fyrir niðurstöður skoðanakönnunar meðal foreldra í leikskóla um starfsdaga í upphafi fyrsta mánudags í mánuði. 51 foreldri svaraði og skiptar skoðanir eru um fyrirkomulagið. Skólastjórnendum er falið að kynna niðustöðurnar fyrir starfsfólki leikskólans og fá fram afstöðu þeirra. Sviðsstjóra og skólastjóra er falið að koma með tillögur um fyrirkomulag á næsta fund fræðsluráðs.

4.Reglur um leikskólaþjónustu

Málsnúmer 2502066Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

5.Rekstrarúttekt leikskóla

Málsnúmer 2411036Vakta málsnúmer

Fræðsluráð samþykkir mönnunarlíkan fyrir leikskólann með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum. Fræðsluráð leggur áherslu á að mönnun vegna styttingar vinnuvikunnar verði mætt að fullu.
Guðný Kristín Guðnadóttir og Anna Berner véku af fundi kl. 11:26

6.Frumvarp til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum

Málsnúmer 2610050Vakta málsnúmer

Fræðsluráð telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við frumvarpið.

7.Niðurstöður grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) vorið 2026

Málsnúmer 2607053Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

8.Innra mat 2025-2026 og umbótaáætlun leikskólans Ásgarðs

Málsnúmer 2608016Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

9.Eftirlitsskýrsla - Húnaþing vestra - Íþróttamiðstöð og sundlaug

Málsnúmer 2610051Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

10.Starfsáætlanir 2027

Málsnúmer 2602081Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:18.

Var efnið á síðunni hjálplegt?