Fjárhagsáætlun 2027

Málsnúmer 2602081

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1284. fundur - 27.07.2026

Sveitarstjóri leggur fram drög að tímaáætlun vegna vinnslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlunar áranna 2028-2030 fyrir sveitarsjóð og undirfyrirtæki.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða áætlun.

Byggðarráð - 1285. fundur - 10.08.2026

Lagt fram minnisblað vegna fjárhagsáætlunargerðar ársins 2027 og þriggja ára áætlunar áranna 2028-2030 fyrir sveitarsjóð og undirfyrirtæki.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðar forsendur með áorðnum breytingum og felur sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að hefja vinnu við gerð fjárhagsáætlunar í samræmi við það.

Meirihluti byggðarráðs leggur fram eftirfarandi bókun:
Meirihluti Framsóknar og annarra framfarasinna og Sjálfstæðismanna og óháðra leggur áherslu á að við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027 verði gengið út frá þeirri forsendu að gjaldskrár standi í stað á milli áranna 2026-2027.

Viktor Ingi lagði fram eftirfarandi bókun:
Minnihluti N-lista fagnar því að stefnt sé að því að gjaldskrár standi í stað milli áranna 2026-2027. Það er von listans að sú aðgerð leiði hvorki af sér hækkanir í stærri skrefum síðar á kjörtímabilinu né auknar lántökur í komandi fjárhagsáætlun.

Byggðarráð - 1289. fundur - 14.09.2026

Fundurinn var fundur aukins byggðarráðs vegna fjárhagsáætlunargerðar.
Byggðarráð leggur áherslu á að gengið verði út frá óbreyttum gjaldskrám frá árinu 2026. Nýr gjaldaliður verður þó í gjaldskrá Hammstangahafnar er snýr að heimild til gjaldtöku vegna geymslu efnis/vara á hafnarkanti til að koma í veg fyrir langtímastöðu á kantinum.

Byggðarráð - 1289. fundur - 14.09.2026

Lagt fram minnisblað um nýtingu og þróun frístundakorta.
Magnús Vignir Eðvaldsson lagði fram eftirfarandi tillögu:

„Ungmennum á aldrinum 16-18 ára er jafnframt heimilt að nýta frístundastyrk til greiðslu þátttökugjalda vegna skipulagðs íþrótta-, félags- og tómstundastarfs utan Húnaþings vestra, enda uppfylli starfsemin markmið þessara reglna og greiðsla sé staðfest með fullnægjandi gögnum. Upphæð frístundakorts hækki jafnframt í kr. 27.000.“

Formaður byggðarráðs lagði fram eftirfarandi breytingartillögu:

„Ungmennum á aldrinum 16-18 ára er jafnframt heimilt að nýta frístundastyrk til greiðslu þátttökugjalda vegna skipulagðs íþrótta-, félags- og tómstundastarfs utan Húnaþings vestra, enda uppfylli starfsemin markmið þessara reglna og greiðsla sé staðfest með fullnægjandi gögnum. Fjárhæðin verði óbreytt á milli ára, eða kr. 25.000.“

Tillaga formanns byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Magnús Vignir, Eygló Hrund og Viktor Ingi sátu hjá.

Byggðarráð - 1289. fundur - 14.09.2026

Lagðar fram starfsáætlanir forstöðumanna stofnana Húnaþings vestra til yfirferðar aukins byggðarráðs.
Lagðar voru fram til kynningar starfsáætlanir forstöðumanna fyrir árið 2026.

Byggðarráð þakkar forstöðumönnum fyrir vandaðar og metnaðarfullar starfsáætlanir fyrir komandi ár.

Byggðarráð - 1289. fundur - 14.09.2026

Innkomnar styrkbeiðnir lagðar fram til yfirferðar aukins byggðarráðs.
Farið var yfir umsóknir um styrki til félags-, menningar- og atvinnumála.

Byggðarráð - 1292. fundur - 05.10.2026

Aukið byggðarráð fundar vegna fjárhagsáætlunar 2027.
Lögð fram tillaga sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs að fjárfestingaáætlun áranna 2027-2030.
Farið yfir tillögu sviðsstjóra að fjárfestingaáætlun áranna 2027-2030.

Fræðsluráð - 266. fundur - 22.10.2026

Lagðar fram til kynningar.

Byggðarráð - 1296. fundur - 26.10.2026

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2027.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir drög að fjárhagsáætlun ársins 2027. Byggðarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun til fyrri umræðu í sveitarstjórn 29. október 2026.

Sveitarstjórn - 408. fundur - 29.10.2026

Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs og undirfyrirtækja fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030 lögð fram til fyrri umræðu í samræmi við 3.mgr. 62. gr. laga nr. 138/2011.
Viktor Ingi Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd N-listans:

„Við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar Húnaþings vestra fyrir árið 2027 telja fulltrúar N-listans mikilvægt að horft sé til þeirra fjárhagslegu áskorana sem sveitarfélagið stendur frammi fyrir vegna ástandsins í ráðhúsi sveitarfélagsins.
Í ljósi þessara aðstæðna telja fulltrúar listans tilefni til að endurskoða þær forsendur fjárhagsáætlunar sem gera ráð fyrir óbreyttum gjaldskrám milli ára.
Þótt mikilvægt sé að sveitarfélagið leggi sitt af mörkum til verðstöðugleika í landinu þarf jafnframt að tryggja ábyrga fjármálastjórn og varðveita fjárhagslegt svigrúm til að mæta ófyrirséðum útgjöldum.
Fulltrúar N-listans óska því eftir því að fyrir síðari umræðu fjárhagsáætlunar verði lagt fram mat á áhrifum þess að almennar gjaldskrár sveitarfélagsins hækki um 2,5% milli ára. Slík hækkun væri innan viðmiða þeirrar ályktunar sem samþykkt var á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í september síðastliðnum um að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027.
Í matinu verði meðal annars gerð grein fyrir áætluðum viðbótartekjum og áhrifum á heimili og fyrirtæki í sveitarfélaginu.“


Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að vísa framlagðri fjárhagsáætlun fyrir 2027 ásamt 3ja ára áætlun fyrir árin 2028 - 2030 fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki til síðari umræðu í sveitarstjórn þann 12. nóvember nk.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Sveitarstjórn - 408. fundur - 29.10.2026

Gjaldskrár fyrir árið 2027 sem þarfnast tveggja umræðna í sveitarstjórn lagðar fram til afgreiðslu.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hirðu, móttöku- og flokkunarstöð úrgangs í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá sorphirðu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hreinsun og losun rotþróa í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hvammstangahöfn, hafnarsjóð.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Hitaveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Vatnsveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Brunavarna Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.
Var efnið á síðunni hjálplegt?