Byggðarráð

1296. fundur 26. október 2026 kl. 14:00 - 15:14 í Félagsheimilinu Hvammstanga
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sigríður Ólafsdóttir
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2027

Málsnúmer 2602081Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2027.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir drög að fjárhagsáætlun ársins 2027. Byggðarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun til fyrri umræðu í sveitarstjórn 29. október 2026.

2.Reglur um veitingu launalausra leyfa til starfsmanna Húnaþings vestra

Málsnúmer 2610072Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að uppfærðum reglum um veitingu launalausra leyfa til starfsmanna Húnaþins vestra.
Í drögunum er skýrt betur í hvaða tilfellum launalaus leyfi eru veitt. Afgreiðslu reglnanna er frestað og sveitarstjóra er falin áframhaldandi vinna við reglurnar áður en þær verða teknar fyrir að nýju.

3.Mál til umsagnar - Frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó, mál nr. S-2092026

Málsnúmer 2610059Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni frá atvinnuvegaráðuneytinu um mál S-209/2026, Frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó.
Byggðarráð Húnaþings vestra fagnar drögum að frumvarpi til laga um stórþörungarækt í sjó og telur mikilvægt að skapa skýra og heildstæða lagaumgjörð um þessa nýju atvinnugrein. Stórþörungarækt getur skapað fjölbreytt tækifæri til atvinnuuppbyggingar, nýsköpunar og verðmætasköpunar, ekki síst í sjávarbyggðum landsins.
Áform eru um stórþörungarækt undan Heggstaðanesi í Húnaþingi vestra og hefur sveitarfélagið jákvæða afstöðu til þeirrar uppbyggingar. Byggðarráð telur mikilvægt að löggjöfin styðji við framgang slíkra verkefna og skapi rekstraraðilum skýr og fyrirsjáanleg skilyrði, án óþarfa stjórnsýslulegra eða fjárhagslegra hindrana.
Byggðarráð vill í því sambandi koma eftirfarandi ábendingum á framfæri:
Einfalt og skilvirkt leyfisferli
Byggðarráð leggur áherslu á að leyfisveitingar vegna stórþörungaræktar verði einfaldar, skilvirkar og fyrirsjáanlegar. Gæta þarf þess að ekki verði komið á óþarflega flóknu stjórnsýsluferli þar sem margir opinberir aðilar koma að afgreiðslu sömu mála. Skýr verkaskipting, samræmd málsmeðferð og hæfilegir afgreiðslufrestir eru mikilvægar forsendur þess að ný atvinnugrein geti byggst upp. Byggðarráð fagnar því að leyfisveitingar verði samþættar hjá Stofnun atvinnuveganna. Umsagnaraðilar samkvæmt 7. gr. eru þó margir og byggðarráð telur rétt að í lögunum verði kveðið á um tímasettan frest stofnunarinnar til að afgreiða umsóknir.
Gildistími og endurnýjun rekstrarleyfa
Í 21. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að rekstrarleyfi verði veitt til 16 ára og að unnt verði að sækja um endurnýjun þess þegar 18 mánuðir eru eftir af gildistímanum. Byggðarráð telur mikilvægt að rekstraraðilum sé tryggður nægilegur fyrirsjáanleiki um gildistíma og endurnýjun leyfa. Fjárfestingar í stórþörungarækt geta verið umtalsverðar og uppbygging starfseminnar tekið tíma. Samkvæmt 2. mgr. 21. gr. er farið með umsókn um endurnýjun eftir ákvæðum IV. kafla, með sama hætti og um nýja umsókn væri að ræða. Slík málsmeðferð er að mati byggðarráðs óþarflega íþyngjandi. Mikilvægt er því að skýr viðmið gildi um endurnýjun leyfa og að rekstraraðilar sem uppfylla áfram lögbundin skilyrði geti treyst á eðlilega samfellu í starfsemi sinni.
Rannsóknarleyfi og uppbygging starfsemi
Samkvæmt 4. mgr. 18. gr. og 2. mgr. 15. gr. frumvarpsins veitir rannsóknarleyfi eða framkvæmd rannsókna ekki forgang við úthlutun rekstrarleyfis. Byggðarráð bendir á að rannsóknir og tilraunarækt geti kallað á umtalsverðar fjárfestingar og að óvissa um möguleika á áframhaldandi starfsemi á sama svæði geti dregið úr hvata til slíkrar uppbyggingar. Meðal valviðmiða í 3. mgr. 18. gr. eru fagþekking og svæðisbundin þekking umsækjanda og byggðarráð telur rétt að þar verði einnig litið til þeirrar fjárfestingar sem umsækjandi hefur lagt í rannsóknir og þróunarstarf á viðkomandi svæði, án þess að slíkt feli í sér sjálfkrafa forgang.
Uppruni ræktunarefnis
Í 25. gr. frumvarpsins eru sett skilyrði um uppruna þess ræktunarefnis sem heimilt er að nota við stórþörungarækt. Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að vernda lífríki sjávar og koma í veg fyrir óæskilega dreifingu framandi stofna. Jafnframt telur byggðarráð mikilvægt að skilyrði um uppruna ræktunarefnis séu skýr og byggist á vísindalegum forsendum. Sérstaklega þarf að skýra hvað teljist sama hafsvæði eða vistfræðilega sambærilegt svæði í skilningi 1. mgr. 25. gr. og á hvaða forsendum Stofnun atvinnuveganna veitir heimild skv. 2. mgr. til notkunar ræktunarefnis af öðrum íslenskum uppruna. Gæta þarf þess að slíkar kröfur verði ekki óþarflega íþyngjandi eða torveldi aðgengi rekstraraðila að hentugu ræktunarefni.
Hóflegar kröfur til rekstraraðila
Byggðarráð leggur áherslu á að kröfur til rekstraraðila, meðal annars vegna rannsókna, vöktunar, fjárhagslegra trygginga og frágangs búnaðar, verði hóflegar og í samræmi við umfang, eðli og áhættu starfseminnar. Mikilvægt er að tryggja ábyrga nýtingu hafsvæða og að rekstraraðilar beri ábyrgð á búnaði sínum og frágangi að starfsemi lokinni. Jafnframt þarf að gæta þess að kröfur um tryggingar og aðrar fjárhagslegar kvaðir verði ekki svo íþyngjandi að þær hindri uppbyggingu nýrrar atvinnugreinar. Samkvæmt 5. mgr. 18. gr. er ráðherra heimilt að mæla fyrir um það í reglugerð að beita útboðsleið við úthlutun ræktunarsvæða. Byggðarráð telur að á uppbyggingarskeiði nýrrar atvinnugreinar verði að stilla álögum á rekstraraðila í hóf og að útboð ræktunarsvæða eigi ekki við á því stigi. Komi síðar til álita að beita útboðsleið telur byggðarráð að um það eigi að kveða á með breytingu á lögunum.
Leyfisveitingar og strandsvæðisskipulag
Byggðarráð telur mikilvægt að heimildir til leyfisveitinga á svæðum þar sem strandsvæðisskipulag liggur ekki fyrir séu skýrar og að skortur á slíku skipulagi leiði ekki til óþarfa tafa á uppbyggingu. Samkvæmt 6. gr. má fresta afgreiðslu umsókna í allt að sjö mánuði, eða lengur ef sérstakar ástæður mæla með því. Skýra þarf hvaða ástæður geti réttlætt lengri frestun. Ákvarðanir um nýtingu hafsvæða þurfa að byggjast á málefnalegu mati á aðstæðum og hagsmunum á hverjum stað. Jafnframt þarf að gæta þess að samræming við aðra nýtingu hafsvæða, svo sem fiskveiðar og siglingar, sé gagnsæ og fyrirsjáanleg.
Gjaldtökuheimildir hafna vegna löndunar stórþörunga
Byggðarráð bendir á að í frumvarpinu er ekki sérstaklega fjallað um gjaldtöku hafna vegna löndunar ræktaðra stórþörunga. Stórþörungarækt getur orðið umfangsmikil atvinnugrein sem nýtir hafnarmannvirki og þjónustu hafna og getur þannig haft jákvæð áhrif á atvinnulíf og rekstur hafna í sjávarbyggðum. Samkvæmt e-lið 1. tölul. 2. mgr. 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003 er aflagjald lagt á sjávarafurðir, sem þar eru skilgreindar sem sjávarafli, þ.e. sjávardýr önnur en spendýr. Ræktaðir stórþörungar virðast því falla utan gjaldstofns aflagjalds. Byggðarráð leggur til að í 45. gr. frumvarpsins verði hafnalögum breytt þannig að skýr heimild verði til gjaldtöku af ræktuðum stórþörungum sem landað er í höfnum, með sambærilegum hætti og eldisgjald er lagt á eldisfisk skv. g-lið sama ákvæðis. Byggðarráð leggur áherslu á að gjaldtökuheimildir hafna vegna ræktaðra stórþörunga verði skýrar og fyrirsjáanlegar, bæði fyrir rekstraraðila og hafnarsjóði, og að tryggt verði að hafnir geti staðið undir kostnaði við þá þjónustu sem þær veita atvinnugreininni.
Aðkoma sveitarfélaga þegar staðbundnir hagsmunir eiga í hlut
Sveitarfélög eru ekki meðal umsagnaraðila samkvæmt 7. gr. frumvarpsins. Byggðarráð bendir á að þó starfsemi utan netlaga falli almennt ekki undir skipulagsvald sveitarfélaga geti hún haft áhrif á atvinnulíf, hafnarstarfsemi og aðra staðbundna hagsmuni. Frumvarpið tekur jafnframt til ræktunar innan netlaga, þar sem sveitarfélög fara með skipulagsvald, og samkvæmt 2. mgr. 8. gr. er búnaður sem heimilaður er í leyfi undanþeginn byggingarleyfisskyldu. Byggðarráð leggur því til að viðkomandi sveitarfélag verði meðal umsagnaraðila samkvæmt 7. gr. og að skýrt verði hvernig leyfisveitingar innan netlaga samræmast skipulagi sveitarfélaga.
Skammur umsagnarfrestur
Gerð er athugasemd við skamman umsagnarfrest á málinu en það var skráð í samráðsgátt 16. október með fresti til 28. október. 12 daga umsagnarfrestur í eins viðamiklu máli sem varðar uppbyggingu framtíðaratvinnugreinar á Íslandi getur ekki talist nægilegur.
Lokaorð
Byggðarráð Húnaþings vestra áréttar jákvæða afstöðu sína til stórþörungaræktar og þeirra tækifæra sem atvinnugreinin getur skapað fyrir íslenskt atvinnulíf og byggðir landsins. Mikilvægt er að ný löggjöf greiði fyrir uppbyggingu greinarinnar, styðji við fjárfestingar og nýsköpun en tryggi um leið ábyrga umgengni um hafsvæði sem og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda.
Byggðarráð Húnaþings vestra styður framgang frumvarpsins og leggur áherslu á að við endanlega útfærslu laganna verði tekið tillit til framangreindra ábendinga.

4.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2602001Vakta málsnúmer

Fundargerð 1004. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 8. október 2026 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:14.

Var efnið á síðunni hjálplegt?