Sveitarstjórn

408. fundur 29. október 2026 kl. 15:00 - 16:13 að Höfðabraut 6
Nefndarmenn
  • Sigurður Líndal Þórisson oddviti
  • Örn Arnarson varaoddviti
  • Eygló Hrund Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
  • Nína Axelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Ólafsdóttir aðalmaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Oddviti kannaði lögmæti fundarins og spurði hvort athugasemdir væru gerðar við boðun hans og fylgigögn. Engar athugasemdir komu fram.

1.Byggðarráð - 1295

Málsnúmer 2610007FVakta málsnúmer

Fundargerð 1295. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 408. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Örn Arnarson formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1295 Byggðarráð fagnar fyrirhugaðri endurskoðun Samgöngu- og innviðaáætlunar landshlutans. Byggðarráð samþykkir samhljóða að tilnefna eftirtalin í nefndina:

    Sigurður Líndal Þórisson og Eygló Hrund Guðmundsdóttir.

    Stjórn SSNV gengur frá skipan nefndarinnar þannig að hvert sveitarfélag í landshlutanum eigi einn fulltrúa og að kynjahlutföll í nefndinni verði sem jöfnust.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1295 Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa beiðninni til fjárhagsáætlunargerðar.
  • Byggðarráð - 1295 Byggðarráð þakkar framkvæmdanefnd hátíðarinnar framlagða skýrslu. Sveitarstjóra er falið að bjóða stjórn hátíðarinnar til fundar við ráðið til að kynna fyrirkomulag hennar og hvernig til hafi tekist undanfarin ár.
  • Byggðarráð - 1295 Byggðarráð Húnaþings vestra tekur undir mikilvægi þess að lagaumgjörð Byggðastofnunar sé skýr og í samræmi við núverandi verkefni stofnunarinnar. Byggðastofnun gegnir mikilvægu hlutverki við að efla atvinnulíf og búsetuskilyrði á landsbyggðinni.

    Ráðið telur mikilvægt að við breytingar á lögunum verði sérstaklega horft til eftirfarandi atriða:

    Í fyrsta lagi verði tryggt að aukið hlutverk Byggðastofnunar við mat á framvindu sóknaráætlana landshluta og eftirlit með fjárreiðum þeirra skerði ekki sjálfstæði landshlutasamtaka sveitarfélaga, ákvörðunarvald þeirra og svigrúm til svæðisbundinnar stefnumótunar.

    Í öðru lagi verði tryggð fullnægjandi fjármögnun atvinnuráðgjafar og byggðaþróunar á landsbyggðinni. Mikilvægt er að þeim verkefnum og þeirri ábyrgð sem landshlutasamtökum sveitarfélaga er falin fylgi nauðsynlegt fjármagn.

    Í þriðja lagi telur byggðarráð mikilvægt að lánastarfsemi Byggðastofnunar taki áfram mið af sérstöðu dreifðra byggða og þeim fjármögnunarörðugleikum sem fyrirtæki og einstaklingar geta staðið frammi fyrir á svæðum þar sem hefðbundið bankakerfi mætir ekki þörfum þeirra.

    Í fjórða lagi leggur ráðið áherslu á að staðsetning Byggðastofnunar á Sauðárkróki verði bundin í lög. Slíkt hefur komið til álita í tengslum við endurskoðun laga um stofnunina en er ekki að finna í fyrirliggjandi frumvarpi. Byggðarráð telur það grundvallaratriði að stofnun sem hefur það meginhlutverk að stuðla að byggðaþróun og jafna búsetuskilyrði landsmanna sé sjálf staðsett á landsbyggðinni. Byggðastofnun hefur um árabil byggt upp öfluga starfsemi á Sauðárkróki þar sem fyrir er mikilvæg þekking, reynsla og hæft starfsfólk. Lögfesting staðsetningarinnar myndi jafnframt stuðla að festu og fyrirsjáanleika í starfsemi stofnunarinnar og undirstrika mikilvægi þess að opinber störf séu staðsett utan höfuðborgarsvæðisins.

    Byggðarráð leggur ríka áherslu á að breytingar á lögum um Byggðastofnun stuðli að öflugri byggðastefnu, styrki samstarf ríkis og sveitarfélaga og tryggi að stofnunin geti áfram sinnt því mikilvæga hlutverki sínu að jafna búsetu- og atvinnutækifæri landsmanna.
  • Byggðarráð - 1295 Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.
  • Byggðarráð - 1295 Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.
  • Byggðarráð - 1295 Byggðarráð Húnaþings vestra leggur áherslu á að við setningu nýrra laga verði þess gætt að þær skyldur sem sveitarfélögum eru lagðar á herðar séu skýrar og raunhæfar og að þeim fylgi viðeigandi fjármögnun. Sveitarfélögum ber nú þegar samkvæmt gildandi lögum að setja sér loftslagsstefnu og vinna að markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Með fyrirliggjandi frumvarpi eru þær skyldur hins vegar útfærðar nánar og að hluta til auknar.

    Í því sambandi bendir byggðarráð sérstaklega á ákvæði 8. gr. frumvarpsins þar sem meðal annars er kveðið á um greiningu á losun og kolefnisbindingu vegna landnotkunar, viðkvæmni- og áhættumat vegna loftslagsbreytinga, skilgreiningu aðlögunaraðgerða eftir þörfum og árlegt mat á árangri loftslagsstefnu.

    Þessar auknu kröfur kunna að fela í sér viðbótar vinnu og aukinn kostnað fyrir sveitarfélög. Byggðarráð leggur því áherslu á að lagt verði mat á þann viðbótarkostnað og þau stjórnsýslulegu áhrif sem fyrirhugaðar breytingar kunna að hafa í för með sér og að tryggt verði að auknum lögbundnum skyldum fylgi viðeigandi fjármögnun og faglegur stuðningur.

    Ráðið telur jafnframt mikilvægt að forðast óþarfa stjórnsýslubyrði og tryggja að sveitarfélög geti eftir því sem kostur er nýtt fyrirliggjandi gögn, sameiginlegar lausnir og núverandi áætlanagerð til að uppfylla skyldur sínar samkvæmt lögunum.
  • Byggðarráð - 1295

2.Byggðarráð - 1296

Málsnúmer 2610009FVakta málsnúmer

Fundargerð 1296. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 408. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Nína Axelsdóttir varaformaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1296 Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir drög að fjárhagsáætlun ársins 2027. Byggðarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun til fyrri umræðu í sveitarstjórn 29. október 2026.
  • Byggðarráð - 1296 Í drögunum er skýrt betur í hvaða tilfellum launalaus leyfi eru veitt. Afgreiðslu reglnanna er frestað og sveitarstjóra er falin áframhaldandi vinna við reglurnar áður en þær verða teknar fyrir að nýju.
  • Byggðarráð - 1296 Byggðarráð Húnaþings vestra fagnar drögum að frumvarpi til laga um stórþörungarækt í sjó og telur mikilvægt að skapa skýra og heildstæða lagaumgjörð um þessa nýju atvinnugrein. Stórþörungarækt getur skapað fjölbreytt tækifæri til atvinnuuppbyggingar, nýsköpunar og verðmætasköpunar, ekki síst í sjávarbyggðum landsins.
    Áform eru um stórþörungarækt undan Heggstaðanesi í Húnaþingi vestra og hefur sveitarfélagið jákvæða afstöðu til þeirrar uppbyggingar. Byggðarráð telur mikilvægt að löggjöfin styðji við framgang slíkra verkefna og skapi rekstraraðilum skýr og fyrirsjáanleg skilyrði, án óþarfa stjórnsýslulegra eða fjárhagslegra hindrana.
    Byggðarráð vill í því sambandi koma eftirfarandi ábendingum á framfæri:
    Einfalt og skilvirkt leyfisferli
    Byggðarráð leggur áherslu á að leyfisveitingar vegna stórþörungaræktar verði einfaldar, skilvirkar og fyrirsjáanlegar. Gæta þarf þess að ekki verði komið á óþarflega flóknu stjórnsýsluferli þar sem margir opinberir aðilar koma að afgreiðslu sömu mála. Skýr verkaskipting, samræmd málsmeðferð og hæfilegir afgreiðslufrestir eru mikilvægar forsendur þess að ný atvinnugrein geti byggst upp. Byggðarráð fagnar því að leyfisveitingar verði samþættar hjá Stofnun atvinnuveganna. Umsagnaraðilar samkvæmt 7. gr. eru þó margir og byggðarráð telur rétt að í lögunum verði kveðið á um tímasettan frest stofnunarinnar til að afgreiða umsóknir.
    Gildistími og endurnýjun rekstrarleyfa
    Í 21. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að rekstrarleyfi verði veitt til 16 ára og að unnt verði að sækja um endurnýjun þess þegar 18 mánuðir eru eftir af gildistímanum. Byggðarráð telur mikilvægt að rekstraraðilum sé tryggður nægilegur fyrirsjáanleiki um gildistíma og endurnýjun leyfa. Fjárfestingar í stórþörungarækt geta verið umtalsverðar og uppbygging starfseminnar tekið tíma. Samkvæmt 2. mgr. 21. gr. er farið með umsókn um endurnýjun eftir ákvæðum IV. kafla, með sama hætti og um nýja umsókn væri að ræða. Slík málsmeðferð er að mati byggðarráðs óþarflega íþyngjandi. Mikilvægt er því að skýr viðmið gildi um endurnýjun leyfa og að rekstraraðilar sem uppfylla áfram lögbundin skilyrði geti treyst á eðlilega samfellu í starfsemi sinni.
    Rannsóknarleyfi og uppbygging starfsemi
    Samkvæmt 4. mgr. 18. gr. og 2. mgr. 15. gr. frumvarpsins veitir rannsóknarleyfi eða framkvæmd rannsókna ekki forgang við úthlutun rekstrarleyfis. Byggðarráð bendir á að rannsóknir og tilraunarækt geti kallað á umtalsverðar fjárfestingar og að óvissa um möguleika á áframhaldandi starfsemi á sama svæði geti dregið úr hvata til slíkrar uppbyggingar. Meðal valviðmiða í 3. mgr. 18. gr. eru fagþekking og svæðisbundin þekking umsækjanda og byggðarráð telur rétt að þar verði einnig litið til þeirrar fjárfestingar sem umsækjandi hefur lagt í rannsóknir og þróunarstarf á viðkomandi svæði, án þess að slíkt feli í sér sjálfkrafa forgang.
    Uppruni ræktunarefnis
    Í 25. gr. frumvarpsins eru sett skilyrði um uppruna þess ræktunarefnis sem heimilt er að nota við stórþörungarækt. Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að vernda lífríki sjávar og koma í veg fyrir óæskilega dreifingu framandi stofna. Jafnframt telur byggðarráð mikilvægt að skilyrði um uppruna ræktunarefnis séu skýr og byggist á vísindalegum forsendum. Sérstaklega þarf að skýra hvað teljist sama hafsvæði eða vistfræðilega sambærilegt svæði í skilningi 1. mgr. 25. gr. og á hvaða forsendum Stofnun atvinnuveganna veitir heimild skv. 2. mgr. til notkunar ræktunarefnis af öðrum íslenskum uppruna. Gæta þarf þess að slíkar kröfur verði ekki óþarflega íþyngjandi eða torveldi aðgengi rekstraraðila að hentugu ræktunarefni.
    Hóflegar kröfur til rekstraraðila
    Byggðarráð leggur áherslu á að kröfur til rekstraraðila, meðal annars vegna rannsókna, vöktunar, fjárhagslegra trygginga og frágangs búnaðar, verði hóflegar og í samræmi við umfang, eðli og áhættu starfseminnar. Mikilvægt er að tryggja ábyrga nýtingu hafsvæða og að rekstraraðilar beri ábyrgð á búnaði sínum og frágangi að starfsemi lokinni. Jafnframt þarf að gæta þess að kröfur um tryggingar og aðrar fjárhagslegar kvaðir verði ekki svo íþyngjandi að þær hindri uppbyggingu nýrrar atvinnugreinar. Samkvæmt 5. mgr. 18. gr. er ráðherra heimilt að mæla fyrir um það í reglugerð að beita útboðsleið við úthlutun ræktunarsvæða. Byggðarráð telur að á uppbyggingarskeiði nýrrar atvinnugreinar verði að stilla álögum á rekstraraðila í hóf og að útboð ræktunarsvæða eigi ekki við á því stigi. Komi síðar til álita að beita útboðsleið telur byggðarráð að um það eigi að kveða á með breytingu á lögunum.
    Leyfisveitingar og strandsvæðisskipulag
    Byggðarráð telur mikilvægt að heimildir til leyfisveitinga á svæðum þar sem strandsvæðisskipulag liggur ekki fyrir séu skýrar og að skortur á slíku skipulagi leiði ekki til óþarfa tafa á uppbyggingu. Samkvæmt 6. gr. má fresta afgreiðslu umsókna í allt að sjö mánuði, eða lengur ef sérstakar ástæður mæla með því. Skýra þarf hvaða ástæður geti réttlætt lengri frestun. Ákvarðanir um nýtingu hafsvæða þurfa að byggjast á málefnalegu mati á aðstæðum og hagsmunum á hverjum stað. Jafnframt þarf að gæta þess að samræming við aðra nýtingu hafsvæða, svo sem fiskveiðar og siglingar, sé gagnsæ og fyrirsjáanleg.
    Gjaldtökuheimildir hafna vegna löndunar stórþörunga
    Byggðarráð bendir á að í frumvarpinu er ekki sérstaklega fjallað um gjaldtöku hafna vegna löndunar ræktaðra stórþörunga. Stórþörungarækt getur orðið umfangsmikil atvinnugrein sem nýtir hafnarmannvirki og þjónustu hafna og getur þannig haft jákvæð áhrif á atvinnulíf og rekstur hafna í sjávarbyggðum. Samkvæmt e-lið 1. tölul. 2. mgr. 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003 er aflagjald lagt á sjávarafurðir, sem þar eru skilgreindar sem sjávarafli, þ.e. sjávardýr önnur en spendýr. Ræktaðir stórþörungar virðast því falla utan gjaldstofns aflagjalds. Byggðarráð leggur til að í 45. gr. frumvarpsins verði hafnalögum breytt þannig að skýr heimild verði til gjaldtöku af ræktuðum stórþörungum sem landað er í höfnum, með sambærilegum hætti og eldisgjald er lagt á eldisfisk skv. g-lið sama ákvæðis. Byggðarráð leggur áherslu á að gjaldtökuheimildir hafna vegna ræktaðra stórþörunga verði skýrar og fyrirsjáanlegar, bæði fyrir rekstraraðila og hafnarsjóði, og að tryggt verði að hafnir geti staðið undir kostnaði við þá þjónustu sem þær veita atvinnugreininni.
    Aðkoma sveitarfélaga þegar staðbundnir hagsmunir eiga í hlut
    Sveitarfélög eru ekki meðal umsagnaraðila samkvæmt 7. gr. frumvarpsins. Byggðarráð bendir á að þó starfsemi utan netlaga falli almennt ekki undir skipulagsvald sveitarfélaga geti hún haft áhrif á atvinnulíf, hafnarstarfsemi og aðra staðbundna hagsmuni. Frumvarpið tekur jafnframt til ræktunar innan netlaga, þar sem sveitarfélög fara með skipulagsvald, og samkvæmt 2. mgr. 8. gr. er búnaður sem heimilaður er í leyfi undanþeginn byggingarleyfisskyldu. Byggðarráð leggur því til að viðkomandi sveitarfélag verði meðal umsagnaraðila samkvæmt 7. gr. og að skýrt verði hvernig leyfisveitingar innan netlaga samræmast skipulagi sveitarfélaga.
    Skammur umsagnarfrestur
    Gerð er athugasemd við skamman umsagnarfrest á málinu en það var skráð í samráðsgátt 16. október með fresti til 28. október. 12 daga umsagnarfrestur í eins viðamiklu máli sem varðar uppbyggingu framtíðaratvinnugreinar á Íslandi getur ekki talist nægilegur.
    Lokaorð
    Byggðarráð Húnaþings vestra áréttar jákvæða afstöðu sína til stórþörungaræktar og þeirra tækifæra sem atvinnugreinin getur skapað fyrir íslenskt atvinnulíf og byggðir landsins. Mikilvægt er að ný löggjöf greiði fyrir uppbyggingu greinarinnar, styðji við fjárfestingar og nýsköpun en tryggi um leið ábyrga umgengni um hafsvæði sem og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda.
    Byggðarráð Húnaþings vestra styður framgang frumvarpsins og leggur áherslu á að við endanlega útfærslu laganna verði tekið tillit til framangreindra ábendinga.
  • Byggðarráð - 1296

3.Fræðsluráð - 266

Málsnúmer 2610008FVakta málsnúmer

Fundargerð 266. fundar fræðsluráðs lögð fram til afgreiðslu á 408. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Sigurður Líndal Þórisson oddviti kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Fjárhagsáætlun 2027 - fyrri umræða

Málsnúmer 2602081Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs og undirfyrirtækja fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030 lögð fram til fyrri umræðu í samræmi við 3.mgr. 62. gr. laga nr. 138/2011.
Viktor Ingi Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd N-listans:

„Við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar Húnaþings vestra fyrir árið 2027 telja fulltrúar N-listans mikilvægt að horft sé til þeirra fjárhagslegu áskorana sem sveitarfélagið stendur frammi fyrir vegna ástandsins í ráðhúsi sveitarfélagsins.
Í ljósi þessara aðstæðna telja fulltrúar listans tilefni til að endurskoða þær forsendur fjárhagsáætlunar sem gera ráð fyrir óbreyttum gjaldskrám milli ára.
Þótt mikilvægt sé að sveitarfélagið leggi sitt af mörkum til verðstöðugleika í landinu þarf jafnframt að tryggja ábyrga fjármálastjórn og varðveita fjárhagslegt svigrúm til að mæta ófyrirséðum útgjöldum.
Fulltrúar N-listans óska því eftir því að fyrir síðari umræðu fjárhagsáætlunar verði lagt fram mat á áhrifum þess að almennar gjaldskrár sveitarfélagsins hækki um 2,5% milli ára. Slík hækkun væri innan viðmiða þeirrar ályktunar sem samþykkt var á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í september síðastliðnum um að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027.
Í matinu verði meðal annars gerð grein fyrir áætluðum viðbótartekjum og áhrifum á heimili og fyrirtæki í sveitarfélaginu.“


Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að vísa framlagðri fjárhagsáætlun fyrir 2027 ásamt 3ja ára áætlun fyrir árin 2028 - 2030 fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki til síðari umræðu í sveitarstjórn þann 12. nóvember nk.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

5.Fjárhagsáætlun 2027

Málsnúmer 2602081Vakta málsnúmer

Gjaldskrár fyrir árið 2027 sem þarfnast tveggja umræðna í sveitarstjórn lagðar fram til afgreiðslu.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hirðu, móttöku- og flokkunarstöð úrgangs í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá sorphirðu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hreinsun og losun rotþróa í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hvammstangahöfn, hafnarsjóð.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Hitaveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Vatnsveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Brunavarna Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Eygló Hrund og Magnús Vignir sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

6.Þjónustustefna Húnaþings vestra

Málsnúmer 2403070Vakta málsnúmer

Þjónustustefna Húnaþings vestra lögð fram til fyrri umræðu í samræmi við 133.gr.a. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir Þjónustustefnu Húnaþing vestra og vísar til síðari umræðu.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 16:13.

Var efnið á síðunni hjálplegt?