Byggðarráð

1295. fundur 19. október 2026 kl. 14:00 - 14:37 að Höfðabraut 6
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá

1.Tillaga að skipan samgöngu- og innviðanefndar, ályktun haustþings SSNV 2026

Málsnúmer 2610046Vakta málsnúmer

Lögð fram ályktun frá haustþingi Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra frá 1. október 2026. Ályktunin varðar tillögu að skipan samgöngu- og innviðanefndar. Óskað er tilnefningar fulltrúa í nefndina.
Byggðarráð fagnar fyrirhugaðri endurskoðun Samgöngu- og innviðaáætlunar landshlutans. Byggðarráð samþykkir samhljóða að tilnefna eftirtalin í nefndina:

Sigurður Líndal Þórisson og Eygló Hrund Guðmundsdóttir.

Stjórn SSNV gengur frá skipan nefndarinnar þannig að hvert sveitarfélag í landshlutanum eigi einn fulltrúa og að kynjahlutföll í nefndinni verði sem jöfnust.

2.Styrkbeiðni - Samtök um karlaathvarf

Málsnúmer 2610053Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkbeiðni frá Samtökum um karlaathvarf dags. 13. október 2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa beiðninni til fjárhagsáætlunargerðar.

3.Eldur í Húnaþingi 2026 - Lokaskýrsla

Málsnúmer 2610036Vakta málsnúmer

Lokaskýrsla vegna hátíðarinnar Eldur í Húnaþingi 2026 lögð fram til kynningar.
Byggðarráð þakkar framkvæmdanefnd hátíðarinnar framlagða skýrslu. Sveitarstjóra er falið að bjóða stjórn hátíðarinnar til fundar við ráðið til að kynna fyrirkomulag hennar og hvernig til hafi tekist undanfarin ár.

4.Mál til umsagnar: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun nr. 106/1999, 156. mál

Málsnúmer 2610028Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni dags. 8. október 2026 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um 156. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun nr. 106/1999.
Byggðarráð Húnaþings vestra tekur undir mikilvægi þess að lagaumgjörð Byggðastofnunar sé skýr og í samræmi við núverandi verkefni stofnunarinnar. Byggðastofnun gegnir mikilvægu hlutverki við að efla atvinnulíf og búsetuskilyrði á landsbyggðinni.

Ráðið telur mikilvægt að við breytingar á lögunum verði sérstaklega horft til eftirfarandi atriða:

Í fyrsta lagi verði tryggt að aukið hlutverk Byggðastofnunar við mat á framvindu sóknaráætlana landshluta og eftirlit með fjárreiðum þeirra skerði ekki sjálfstæði landshlutasamtaka sveitarfélaga, ákvörðunarvald þeirra og svigrúm til svæðisbundinnar stefnumótunar.

Í öðru lagi verði tryggð fullnægjandi fjármögnun atvinnuráðgjafar og byggðaþróunar á landsbyggðinni. Mikilvægt er að þeim verkefnum og þeirri ábyrgð sem landshlutasamtökum sveitarfélaga er falin fylgi nauðsynlegt fjármagn.

Í þriðja lagi telur byggðarráð mikilvægt að lánastarfsemi Byggðastofnunar taki áfram mið af sérstöðu dreifðra byggða og þeim fjármögnunarörðugleikum sem fyrirtæki og einstaklingar geta staðið frammi fyrir á svæðum þar sem hefðbundið bankakerfi mætir ekki þörfum þeirra.

Í fjórða lagi leggur ráðið áherslu á að staðsetning Byggðastofnunar á Sauðárkróki verði bundin í lög. Slíkt hefur komið til álita í tengslum við endurskoðun laga um stofnunina en er ekki að finna í fyrirliggjandi frumvarpi. Byggðarráð telur það grundvallaratriði að stofnun sem hefur það meginhlutverk að stuðla að byggðaþróun og jafna búsetuskilyrði landsmanna sé sjálf staðsett á landsbyggðinni. Byggðastofnun hefur um árabil byggt upp öfluga starfsemi á Sauðárkróki þar sem fyrir er mikilvæg þekking, reynsla og hæft starfsfólk. Lögfesting staðsetningarinnar myndi jafnframt stuðla að festu og fyrirsjáanleika í starfsemi stofnunarinnar og undirstrika mikilvægi þess að opinber störf séu staðsett utan höfuðborgarsvæðisins.

Byggðarráð leggur ríka áherslu á að breytingar á lögum um Byggðastofnun stuðli að öflugri byggðastefnu, styrki samstarf ríkis og sveitarfélaga og tryggi að stofnunin geti áfram sinnt því mikilvæga hlutverki sínu að jafna búsetu- og atvinnutækifæri landsmanna.

5.Mál til umsagnar - frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 59. mál

Málsnúmer 2610048Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis frá 13. október um 59. mál, frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).
Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

6.Mál til umsagnar - Tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá, 88. mál

Málsnúmer 2610049Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis frá 13. október um 88. mál, Tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.
Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

7.Mál til umsagnar - Loftslagslög, 202. mál

Málsnúmer 2610057Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni dags. 15. október frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um 202. mál, Loftslagslög.
Byggðarráð Húnaþings vestra leggur áherslu á að við setningu nýrra laga verði þess gætt að þær skyldur sem sveitarfélögum eru lagðar á herðar séu skýrar og raunhæfar og að þeim fylgi viðeigandi fjármögnun. Sveitarfélögum ber nú þegar samkvæmt gildandi lögum að setja sér loftslagsstefnu og vinna að markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Með fyrirliggjandi frumvarpi eru þær skyldur hins vegar útfærðar nánar og að hluta til auknar.

Í því sambandi bendir byggðarráð sérstaklega á ákvæði 8. gr. frumvarpsins þar sem meðal annars er kveðið á um greiningu á losun og kolefnisbindingu vegna landnotkunar, viðkvæmni- og áhættumat vegna loftslagsbreytinga, skilgreiningu aðlögunaraðgerða eftir þörfum og árlegt mat á árangri loftslagsstefnu.

Þessar auknu kröfur kunna að fela í sér viðbótar vinnu og aukinn kostnað fyrir sveitarfélög. Byggðarráð leggur því áherslu á að lagt verði mat á þann viðbótarkostnað og þau stjórnsýslulegu áhrif sem fyrirhugaðar breytingar kunna að hafa í för með sér og að tryggt verði að auknum lögbundnum skyldum fylgi viðeigandi fjármögnun og faglegur stuðningur.

Ráðið telur jafnframt mikilvægt að forðast óþarfa stjórnsýslubyrði og tryggja að sveitarfélög geti eftir því sem kostur er nýtt fyrirliggjandi gögn, sameiginlegar lausnir og núverandi áætlanagerð til að uppfylla skyldur sínar samkvæmt lögunum.

8.Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2026

Málsnúmer 2608080Vakta málsnúmer

Fundargerð 145. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra frá 6. október 2026 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:37.

Var efnið á síðunni hjálplegt?