Mál til umsagnar: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun nr. 106/1999, 156. mál

Málsnúmer 2610028

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1295. fundur - 19.10.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni dags. 8. október 2026 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um 156. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun nr. 106/1999.
Byggðarráð Húnaþings vestra tekur undir mikilvægi þess að lagaumgjörð Byggðastofnunar sé skýr og í samræmi við núverandi verkefni stofnunarinnar. Byggðastofnun gegnir mikilvægu hlutverki við að efla atvinnulíf og búsetuskilyrði á landsbyggðinni.

Ráðið telur mikilvægt að við breytingar á lögunum verði sérstaklega horft til eftirfarandi atriða:

Í fyrsta lagi verði tryggt að aukið hlutverk Byggðastofnunar við mat á framvindu sóknaráætlana landshluta og eftirlit með fjárreiðum þeirra skerði ekki sjálfstæði landshlutasamtaka sveitarfélaga, ákvörðunarvald þeirra og svigrúm til svæðisbundinnar stefnumótunar.

Í öðru lagi verði tryggð fullnægjandi fjármögnun atvinnuráðgjafar og byggðaþróunar á landsbyggðinni. Mikilvægt er að þeim verkefnum og þeirri ábyrgð sem landshlutasamtökum sveitarfélaga er falin fylgi nauðsynlegt fjármagn.

Í þriðja lagi telur byggðarráð mikilvægt að lánastarfsemi Byggðastofnunar taki áfram mið af sérstöðu dreifðra byggða og þeim fjármögnunarörðugleikum sem fyrirtæki og einstaklingar geta staðið frammi fyrir á svæðum þar sem hefðbundið bankakerfi mætir ekki þörfum þeirra.

Í fjórða lagi leggur ráðið áherslu á að staðsetning Byggðastofnunar á Sauðárkróki verði bundin í lög. Slíkt hefur komið til álita í tengslum við endurskoðun laga um stofnunina en er ekki að finna í fyrirliggjandi frumvarpi. Byggðarráð telur það grundvallaratriði að stofnun sem hefur það meginhlutverk að stuðla að byggðaþróun og jafna búsetuskilyrði landsmanna sé sjálf staðsett á landsbyggðinni. Byggðastofnun hefur um árabil byggt upp öfluga starfsemi á Sauðárkróki þar sem fyrir er mikilvæg þekking, reynsla og hæft starfsfólk. Lögfesting staðsetningarinnar myndi jafnframt stuðla að festu og fyrirsjáanleika í starfsemi stofnunarinnar og undirstrika mikilvægi þess að opinber störf séu staðsett utan höfuðborgarsvæðisins.

Byggðarráð leggur ríka áherslu á að breytingar á lögum um Byggðastofnun stuðli að öflugri byggðastefnu, styrki samstarf ríkis og sveitarfélaga og tryggi að stofnunin geti áfram sinnt því mikilvæga hlutverki sínu að jafna búsetu- og atvinnutækifæri landsmanna.
Var efnið á síðunni hjálplegt?