Mál til umsagnar - Loftslagslög, 202. mál

Málsnúmer 2610057

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1295. fundur - 19.10.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni dags. 15. október frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um 202. mál, Loftslagslög.
Byggðarráð Húnaþings vestra leggur áherslu á að við setningu nýrra laga verði þess gætt að þær skyldur sem sveitarfélögum eru lagðar á herðar séu skýrar og raunhæfar og að þeim fylgi viðeigandi fjármögnun. Sveitarfélögum ber nú þegar samkvæmt gildandi lögum að setja sér loftslagsstefnu og vinna að markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Með fyrirliggjandi frumvarpi eru þær skyldur hins vegar útfærðar nánar og að hluta til auknar.

Í því sambandi bendir byggðarráð sérstaklega á ákvæði 8. gr. frumvarpsins þar sem meðal annars er kveðið á um greiningu á losun og kolefnisbindingu vegna landnotkunar, viðkvæmni- og áhættumat vegna loftslagsbreytinga, skilgreiningu aðlögunaraðgerða eftir þörfum og árlegt mat á árangri loftslagsstefnu.

Þessar auknu kröfur kunna að fela í sér viðbótar vinnu og aukinn kostnað fyrir sveitarfélög. Byggðarráð leggur því áherslu á að lagt verði mat á þann viðbótarkostnað og þau stjórnsýslulegu áhrif sem fyrirhugaðar breytingar kunna að hafa í för með sér og að tryggt verði að auknum lögbundnum skyldum fylgi viðeigandi fjármögnun og faglegur stuðningur.

Ráðið telur jafnframt mikilvægt að forðast óþarfa stjórnsýslubyrði og tryggja að sveitarfélög geti eftir því sem kostur er nýtt fyrirliggjandi gögn, sameiginlegar lausnir og núverandi áætlanagerð til að uppfylla skyldur sínar samkvæmt lögunum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?